Búnaðarrit - 01.01.1929, Blaðsíða 277
BÚNAÐARRIT
271
Jaröræktarnefnd hefir haft til meðíerðar og ítarlegrar
yfirvegunar mál Nr. 9, sem er álit nefndar þeirrar, er
skipuð var af Búnaðarfjelagi íslands 22. okt. 1927, til
þess að gera tillögur um íyrirkomulag tilraunastarfsem-
innar í landinu.
Nefndin hefir fallist í heildaratriðum á niðurstöðu
nefndarálits þessa, bls. 21—22. Lið 1—8.
Um tillögur nefndarálitsins, á bls. 22, hefir jarðræktar-
nefndin og verið sammála í megindráttunum, en þykir
á hinn bóginn ekki nægilega skýrar línur dregnar með
þeim um skipulag starfseminnar framvegis.
Jarðræktarnefndin hefir orðið sammála um, að bera
fram eftirfylgjandi tillögu:
„Búnaðarþingið leggur til:
1. Að gróðrarstöðin í Rvik verði lögð niður, eldri til-
raunum, sem þar eru nú, sje lokið sem fyrst, helst
á þessu ári, og hætt við þær tilraunir, sem fyrir-
sjáanlegt er, að eigi verður lokið þar á næstu
2 á r u m .
Samþ. með 10 samhlj, atkv.
2. Að sett verði á fót, strax er fjárráð leyfa, 2 aðal-
tilraunastöðvar, önnur á Suðurlandsundirlendinu,
hin á Norðurlandi, sem hafi aðallega jarðræktar-
tilraunir til meðferðar.
Samþ. með 9 : 1 atkv.
3. Að settar verði á fót, svo fljótt sem tök þykja á,
2 aðrar tilraunastöðvar, önnur í Vestfirðingafjórð-
ungi, hin í Austfirðingafjórðungi, sem framkvæmi
jarðræktartilraunir, er verða að teljast sjerstæðar
fyrir þá fjórðunga, og endurtaki þá liði af tilraun-
um Norður- og Suðurlands-stöðvanna, er álits geta
orkað. — Meðan þessar stöðvar komast ekki á fót,
styrkir Búnaðarfjelag íslands tilraunastarfsemi þá,
er samböndin í þessum fjórðungum kunna að hafa