Búnaðarrit - 01.01.1929, Síða 339
BUNAÐAE.RIT
338
getur illa fariÖ, sjerstaklega ef því er eitthvað beitt.
Dæmin, sem jeg hefi nefnt hjer að framan, sýna hversu
erfitt það getur verið. Harka kindarinnar og lævísi veik-
nnar gera það einnig erfitt að sigla fram hjá þeim
skerjum, sem fyrir kunna að koma.
í öðru lagi, að lækna hið veika fje með lyfjum. Þau
lyf, sem jeg hefi notað, og best reyndust, voru opto-
chinin við lungnabólgunni og laxerolía við þembunni,
einnig getur verið gott að nota hóstasaft til þess að
losa hóstann. Sjái á kind: mæði, deyfð, þemba eða át-
leysi, skal hún mæld. Hafi hún hita1) 40,5—41,5 eða
þar yfir, skal gefa henni lungnabólgu-skamt, 20 ctgr.
optochinin leyst upp í 10—15 gr. af köldu vatni; sje
hún auk þess þembd, skal gefa henni 25—30 gr. af
laxerolíu. Best er þó að þurfa ekki að gefa lungna-
bólgumeðal og laxerolíu samtimis, betra að geta látið
líða dálitið á milli, helst dægur. Sje kindin þembd, en
hitalaus, skal að eins gefa laxerolíu. Sjeu lungnabólgu-
meðul gefin, er rjett að láta kindina ekki fá vatn næsta
sólarhring á eftir. — í flestum tilfellum mun hægt að
komast af með lungnabólgu-meðul og laxerolíu, og sjeu
þau lyf notuð á rjettum tíma, ætti að vera hægt að
bjarga flestu því fje, sem veikist.
Lyf skal ávalt gefa kindum þannig, að sá sem gefur
þau tekur kindina, stendur klofvega yfir hana, tekur með
vinstri hendi undir kjálkana og heldur höfðinu dálítið
upp, en heldur á lyfinu með hægri hendi og hellir því
ofan í hana úr litlu glasi. Vilji hún hósta, skal gefa
höfuðið laust. Kindur ætti aidrei að setja á rassinn og
hella þannig ofan í þær; á því hefir mörg kindin verið
drepin. Ætti því sem fyrst að hætta þeim ósið, auk þess
er það miklu meiri þvælingur á kindinni, þvælingur sem
hún þolir mjög illa, sje hún veik.
Eins og gefur að skilja, má alls ekki baða það fje,
1) Húsdýrin eru mœld með venjulegum manna-mœli.