Búnaðarrit - 01.01.1937, Page 16
XII
B Ú N A Ð A R R I T
á þörl' umbótanna, enda er það svo nú, að það eru
víða nemendur hans, sem eru forsvarsmenn umbót-
anna hver i sinni sveit. Og nemendur Halldórs eru nú
um allt, því um hundraðasti hver bóndi landsins hefir
sótt nám sitt að Hvanneyri.
Búskapinn á Hvanneyri rak Halldór með myndar-
skap og dugnaði enda græddist honum þar fé. Hann
lét sér annt um það að húið væri rekið þannig, að piltar
gætu þar séð öll helstu verkfæri, og kynnst notkun
þeirra. Búið var stórt, og fór stækkandi, og þó sér-
staklega kúabúið. Um skeið voru þar ágætar kýr enda
lögð rækt við að reyna að bæta þær. En þær gengu
úr sér síðustu árin, aðallega vegna þess að siðasta
nautið, sem þar var notað, reyndist illa. Halldór lél
gera skyr og smjör úr mjólkinni, og hafði lil þess full-
komin tæki. Urðu mjólkurvörur frá Hvanneyri þekkt-
ar sem þær beztu, er seldar voru á Reykjavikurmark-
aði, og seldust þær hærra verði en samskonar vörur
annarsstaðar frá. Fé var margt á Hvanneyri, og mjög
sæmilegt að gæðum. Svínarækt var þar nokkur og
hænsnárækt. Mikið lagði Halldór sig eftir þyí að út-
breiða þekkingu á votheysgerð, og var þar brautryðj-
andi, enda þótt votheysgerð væri ekki þekkt hér á landi
áður. Halldór vildi að við bændaskólana væru gerðar
ýmiskonar tilraunir, og lét gera nokkrar, aðallega fóðr-
unartilraunir. Fæstar af þeim hai'a varanlegt né al-
mennt gildi, en fyrir atbeina hans var það, að byrjað
var á fóðrunartilraunum, og hefir þeim síðan verið
haldið áfram af Búnaðarfélagi íslands, og hafa þær
gefið margar upplýsingar, sem allir hafa gagn af.
Heimilið á Hvanneyri var með stórbýlasniði. Þar
var ætíð margt lólk og mikill gleðskapur. Þar var
mikið um að vera og í mörgu að snúast. Húsbópdinn
var stjórnsannir og hafði góða ráðsmenn. Halldór
gerði kröfu lil þess að vel væri unnið og kappsamlega,
Fólki greiddi hann kaup eftir því seni honum fannst