Búnaðarrit - 01.01.1937, Blaðsíða 325
B U N A Ð A R R I T
305
telur hann sig lala af eigin reynslu, því kýrnar hafi
hann reynt aí5 stækka og hæta. Þær mjólki nú 2000—
2400 pt. yfir árið, og þannig gætu allar kýr orðið i
landinu, og betri, en bændurnir í kringum sig fái ekki
nema 1000—1400 pt. eftir kúna um árið. Við þessai-
kýr búi þeir, og j)ó scu til nægar góðar, íslenzkar ættir,
sem mætti rækta i stað hinna, ef athygli og gott fóður
fylgdi. Þá leggur hann niður tjónið af þessari stóru
"vanrækslusynd bændanna: Kýrnar ættu að geta mjólk-
að 1200 pt. meira á ári en þær gera. Pottinn megi meta
á 3 skildinga, og sé tjónið á hverri kú 37% ríkisdalur.
Nú séu taldar í Norður- og Austuramti 4712 kýr, og
verði þá tjónið á þeiin 176,700 rd. á ári, i þessum tveim-
ur ömtum. Þá gerir hann dæmið upp á annan veg.
Fyrir slælegt úrval og iélegt fóður mjólkar hver kýr
1200 pt. minna á ári en eðlilegt er. Af 4712 kúm verða
þessi afföll: 5654400 pt. Dagsfæði handa vinnandi
manni telur hann 4 pt. al' nýmjólk, og glatist því ár-
lega mathjörg sem nemi ársfæði fyrir 3872 menn.
Engan þarf að undra, þó þetta yxi Stefáni amtinanni
i augum, eins og þá stóð á. Margra ára harðindi ný af-
staðin, sem voru svo hörð að margir dóu af sulti eða
harðrétti, og búfé manna svo fátt að dugandi mönnuni
gekk illa að l'á vistir, þó ekki væri annað sett upp en
föt og fæði, og hvorttveggja þó af skornum skammti.
Vafalaust er núlifandi íslendingum erfitt að skilja hví-
lík voru kjör þessa fólks. Þess vegna skal ég bæta því
við, ti! frekari skýringar, að þá eru 62 þumlungar talin
meðal hæð fullorðins manns. Hann talar því hér lil
fólks, sem er ]>jáð til hins ýtrasta af skorti og svo fá-
tækt, að það á fáa úrkosti að afla sér daglegs hrauðs,
■og þekkir ekki önnur úrræði en að spara alla hluti,
■og neita sér og skepnunum um bvern málsverð matar,
sem það áleit að óhætt væri að leggja á það.
Stelan Þórarinsson er fyrstur manna, sem ég veit um
íið hafi reynt að gera það upp, hvað þessi sparnaður
20