Búnaðarrit - 01.01.1937, Blaðsíða 76
56
BÚNAÐARRIT
þurrkar settu kyrrstöðu í gróður um tíma, og fyrir
því var lengi að spretta, en það varð aftur til þess,
að féð varð vænt haustið 1936. Sláttur byrjaði fyrst i
Fljótsdal á Hrafnkellsstöðum 21. júní. Upp úr því fóru
menn að slá á Austurlandi. Sunnanands byrjuðu menn
seinna, og víða ekki fyrr en um iniðjan júlí. Sumarið
1936 hefir verið gott, sérstaklega norðan- og austan-
lands. Heyskapur er þá líka góður yfirlcitt. Þó eru
bæir á Norður- og Vesturlandi, sem misstu hey bæði í
stormi, af því hey fuku, og eins í flóði, sem kom i
Héraðsvötnin i september. En þetta eru meira einstakir
bæir en fjöldinn, og sem heild verður að telja bæði
mikil og góð hey nú um land allt.
Haustið var umhleypingasamt á Suður- og Vestur-
landi, en sérstaklega gott á Austurlandi. Sama gildir
veturinn til áramóta. Sunnanlands hefir verið óvenju-
lega mikill snjór, og það t. d. í Skaftafellssýslum, sem
venjulega eru snjóléttar. Austan- og norðanlands hefir
veturinn aftur verið góður til þessa og gjafaléttur.
Báða þessa vetur hefir fé gengið af á afréttum, fyrri
veturinn veit ég af 8 kindum og þann siðari af 7.
Vænleiki sláturfjárins þessi tvö ár sést á eftirfar-
andi yfirliti, er sýnir hve miklu var slátrað af dilkum
á ýmsum helztu sláturstöðunum og hve mikinn
skrokkþunga meðaldilkurinn hafði.
1935 Meðal- 1936 Meöal-
Dilka- Uropp- Dilka- kropp-
tala þungi tala þungi
Borðeyri 8923 14,73 7393 15,90
Hólmavík 6539 14,94 6723 15.79
Arngerðareyri . , 2329 14,73 2158 15,48
Ospaksevri 954 15,30 541 15.35
Króksf jarðarnes 4090 15,17 3204 15,33
Reykhólar, talin með Króksfj. „ „ 1009 15,20
Búðardalur . . . 10308 14,72 10941 15,01
Vatnsfjörður, slátrað á ísaf. „ „ 1558 14,55
Hvammstangi . 15002 14,28 20376 14,53
I'latey 4407 14,50 4369 14,52