Búnaðarrit - 01.01.1937, Blaðsíða 151
BÚNAÐARRIT
131
uðu þá ú búreikningahaldi. Leiðbeindi ég þeim ei'tir
þörfúm og gerði upp búreikninga þeirra. Hefi ég haldið
því starfi áfram síðan.
Haustið 1934 sendi Búnaðarfélagið mér (i búreikn-
inga frá árinu 1933, sem því höfðu borizt, en flestir
þeir, er formin fengu 1932, létu ekkert frá sér heyra.
Reikninga þessa gerði ég upp og vann úr hagfræðilegar
upplýsingar ásamt þeim reikningum, er ég liafði í Anda-
kíl og Skorradal. Árangurinn af þessu starfi var birtur
í fjölritaði skýrslu, en búreikningarnir þóttu of fáir
til þess að niðurstöðurnar yrðu birtar almenningi.
Árið 1935 var mér falið að starfa áfram að þessum
málum. Bárust mér þá 21 búreikningur alls frá árinu
1934, þar al' 9 úr Borgarf.jarðarsýslu. Gerði ég þá upp
flesta og gerði skýrslu um helztu niðurstöður þeirra.
Var hún fjölrituð og gefin út af Búnaðarfélaginu.
Haustið 1935 var að Hvanneyri haldið búreikninga-
námskeið, hið fyrsta hér á landi. Sóttu það 10 búfræð-
ingar ,en auk þess tóku þátt í því 2 af nemendum skól-
ans í eldri-deild. Það stóð yfir frá 18. nóv. til 5. des., en
undirritaður liafði kennslu á hendi. Þeir, sem tóku þátt
í námskeiði þessu ciga að vera færir um að leiðbeina
bændum við í'ærslu búreikninga og hafa nokkrir þeirra
nii stofnað búreikningafél. Þessir voru þátttakendur:
1. Björn F. Júlíusson, Miðhópi, V.-Húnavatnssýslu.
2. Gísli Brynjólfsson, Hvalgröfum, Skarðsströnd, Dal.
3. Grímur Gíslason, Saurbæ, Vatnsdal, A.-Hún.
4. Guðjón Gíslason, Súlunesi, Borgarfj.
5. Halldór Vigfússon, Kvígsstöðum, Borgarfj.
(». Hermann Vilhjálmsson, Torfurnesi, S.-Þing.
7. Hreiðar Eiríksson, Hrafnagili, Eyjal'irði.
8. Jón Sæmundsson, Aratungu, Strandasýslu.
9. Ólaf ur Andrésson, Hálsi, Kjósarsýslu.
10. Sigurður Daníelsson, Skarfhóli, V.-Hún.
11. Sigurður Loftsson, Bakka, A.-Landeyjum, Rang.
12. Sæmundur Björnsson, Hríshóli, Reykhólasveit.