Búnaðarrit - 01.01.1937, Blaðsíða 148
128
BÚNAÐARRIT
Vorið 1936 voru þessir:
Guðmann Ólafsson, Hagavík, Grafningshr., Árn.,
Sverrir Baldvinsson frá Ási í Glæsibæjarhr., Eyf., og
Stefán Guðmundsson frá Túni í Flóa.
Flestir af þessum mönnum dvöldu hér 6—8 vikur, og
sumir lengur; tóku þeir þátt í öllum þeim störfum,
sein verða hér við framkvæmd kornyrkjunnar á vorin.
í haust nutu 4 menn af svæði Búnaðarsamb. Suður-
lands tilsagnar í kornuppskeru, þeir: Sigurður Ágústs-
son, hóndi í Birtingaholti, Þórarinn Helgason, Iióndi,
Þykkvabæ í Landbroti, Bjarni Dagsson, búfr., Gaul-
verjabæ, Flóa, og Stefán Guðmundsson frá Túni í Flóa.
Veitti Búnaðarsamband Suðurlands hverjum 25 kr.
styrk til ferðakostnaðar og sem kaup fyrir að dvelja
hér. — Væri nauðsyn, að stofnað yrði til víðtækra
námskeiða í akuryrkju vor og haust, og þá á þeim
stöðum, þar sem hún er framkvæmd svo nokkru
nernur. Einkum þyrfti að hreyta þannig verknámi
bændaskólanna, að þaðan lcæmu menn, sem kynnu
hin nauðsynlegustu vinnubrögð sem þarf við fram-
kvæmd akuryrkju, en til þess þarf að breyta jarðrækt
þeirra úr því frumstæða horfi, sem hún er. Þar þarf
að taka upp sáðskiptiræktun á hinum víðlendu tún-
um þeirra, hygg, hafra og kartöflurækt, auk ýmsrar
annarar ræktunar, t. d. gulrófufrærækt og matjurta-
rækt, sem hafa má i sáðskiptum. Ætti þelta, ef fram-
kvæmt yrði, að gera verknám bændaefna fjölbreytt-
ara en verið hefir.
Vorið 1935 hætti Andrés Kerúlf störfum hér við
stöðina, en tók við starfsemi þeirra, sem þá var hafin í
Reykholti, og hefir nú forstöðu akuryrkjubúsins þar.
Þakka ég honum fyrir góða aðstoð þau rúm 3 ár sem
hann vann hér við starfsemina með mér. í stað Kerúlfs
réði ég Boga Nikulásson búfræðing sem aðstoðarmann,