Búnaðarrit - 01.01.1937, Blaðsíða 107
B Ú N A Ð A R R I T
87
A Alþingi liéfi ég setið, og auk þess tekið nokkurn
þátt í undirbúningi mála undir þing á milli þinga.
Loks hefi ég verið i ríkisskattanefnd eins og að
undanförnu.
Þessi ár hefir töluvert mikið starf farið í að vera
umboðsmaður manna, sem sóttu um lán úr „bænda-
kreppunni“ og nianna, sem áttu á þá kröfur, svo og
manna, sem sóttu um lán úr „bátakreppunni" og
manna, sem áttu kröfur á þá. Loks hefi ég verið um-
boðsmaður 10 oddyita fyrir hreppa, sem fóru i „hreppa-
kreppuna" og virðist mér, að öll þessi kreppuumboð,
sem ég hefi haft, hafi tekið ótrúlega mikinn tíma frá
mér, og þó brestur vafalaust á að þau hafi verið rækt
eins og þurft hel'ði að vera. En þau hafa sparað nokkr-
um hundruðum manna ferð til Reykjavikur, og þvi
komið þeim að einhverju gagni beint, hvort sem málin
hafa fyrir það orðið ver leyst en ella hefði orðið.
Um leið og ég lýk þessari skýrslu, vil ég þakka öllum
fyrir samvinnuna.
Mig hefir stundum greint á við suina sem ég hefi
þurft að vinna með að pólitísku málunum, en ég hefi
ekki orðið var við að það hafi haft nein áhrif á gang
annara mála sem ég hefi þurft að vinna að og vinna
fyrir. Og ég vildi vona, að ég vnni ekki lengur fyrir
islenzka bændur en það, að þess gætti aldrei í starfi
mínu fyrir þá, að ég ynni ekki eins fyrir þá hvern og
einn, hvaða skoðun sem þeir hefðu á pólitikinni. Eg
hefi orðið var við, að einstaka menn í kaupstöðum
bera kvíðboga fyrir því, að iiændur landsins, sem t. d.
eru af andstæðri skoðun við mig um pólitísk stefnu-
mál, muni ekki leita eins til mín, af því að ég er elcki
skoðanabróðir þeirra. Þessa hefi ég ekki orðið var, og
ég vildi vona, að ég gæti starfað svo að ég yrði þess
aldrei var.
Bréfaskriftir hafa aldrei verið meiri hjá mér en jiessi
tvö ár, en mikið af þeim stendur í sambandi við um-