Búnaðarrit - 01.01.1937, Blaðsíða 146
12(5
BÚNAÐARRIT
búskap á jörðinni Klauf við Eyjafjörð, og er vist í
ráði að þar hefjist kornyrkja næstk. vor.
Bæði árin hefir Búnaðarsamband Suðurlands keypt
hér l'rá stöðinni alLmikið af korni til úthlutunar á
sambandssvæðinu, fyrra árið 405 kg. og liið síðara
1816 kg. Hefir útsæði þessu verið úthlutað ti! ein-
stakra manna er beðið hafa um það til ræktun-
ar, og eins eftir pöntunum frá hreppabúnaðar-
félögum, en þau svo aftur látið það til félagsmanna,
og þeir fengið 2—10 kg af útsæði gel'ins, með því
skilyrði, að þeir ræktuðu það, og gæfi skýrslu um
árangurinn. Víða hafa þó litlar upplýsingar fengizt
um árangur kornyrkjunnar, en þaðan sem vitneskja
hefir fengizt, hefir kornyrkjan víða reynst vel, og sum-
staðar hafa þessar tilraunir vakið áhuga fyrir aukinni
kornyrkju, og sannfært menn um j)að, að byggið að
minnsta kosti, getur náð góðum þroslta, ekkert síður
en annnað gras, sem sprettur á jörðinni. Á síðasta
búnaðarsambandsfundi var samþykkt að korngjöfum
sambandsins skyldi hætt, en þess í stað skyldi styrkja
skipulega sáðskiptaræktun á korni, kartöflum og grasi
í hreppabúnaðarfélögunum.
Styrkur þessi er áætlaður kr. 100,00 á ári fyrir hvert
sáðskipti og félag, og fær aðeins einn bóndi í eitt skipti
þennan styrk, ef hann tekur þessa ræktunartilhögun
upp. Hvernig þessi ráðstöfun reynist fyrir framgang
kornyrkjunnar mun reynslan sýna.
Þær stofnanir, sem sérstaklega ber skylda til að
styðja að fjölþættari og betri framleiðslu, eru búnaðar-
samböndin, hreppabúnaðarfélögin og kaupfélög bænd-
anna.
Gagnvart útbreiðslu kornyrkjunnar eiga búnaðar-
samböndin aðallega að hafa á hendi leiðbeininga- og
eftirlitsstarfsemi, hvert á sínu svæði. Þau eiga að veita
styrki og verðlaun fyrir vel framkvæmda kornrækt,
hafa íhlutun með hvaða litsæði bændur nota, og sjá