Búnaðarrit - 01.01.1937, Blaðsíða 69
B Ú N A Ð A R R I T
4í)
sín. — Þó báðir þessir hestar séu ágætir undaneldis-
gripir, þá eru þeir þó ólikir um inargt. Móri gefur
þurra, létta byggingu, en heldur granna, ágætan gang
og þjált fjör. Ef börn hans eru alin upp á útigangi
einum, án sanngjarnrar hjálpar, þá hættir þeim við
að þroskast seint og verða um of löng og grönn, og þá
er hætt við sveigðu baki og lítið hvelfdum síðum.
Aftur á móti halda þau ávalt léttri og finni byggingu,
þó þau njóti eldis. Flest virðast þau hafa mikið vaxt-
arrými, góðan gang og ljúft t’jör, svo þarna gæti vaxið
upp góður hrossastofn, ef hann nyti aðhynningar að
verðeikum, en á það skortir nú, þá litið er á heildina.
Víðir frá Þorkelshóli hefir óvenju trausta og þolna
byggingu, er skörungur í lund, en nokkuð skapharður,
og líkjast börnin honum flest að þessu. Mörg þeirra
virðast hafa harðan vilja og sum þeirra mikið fjör.
Einnig bendir sú litla reynsla, sem fengin er, í þessa
sömu átt. Mest fannst mér þó til um, hve tryppin voru
stór, réttvaxin, þroskamikil og gengu vel undan vetri.
Þó l'lest útistaðin. Var mikill munur þeirra og mæðra
þeirra. — Þætli mér fýsilegt að reyna blöndun milli
þessara tveggja ættstuðla, sem ég hefi nú nefnda, því
eitthvað af krökkunum mundi erfa kosti beggja ætl-
feðranna, en það væru góð hross.
Sýningarnar voru yfirleitt vel sóttar, og gáfu allgott
yfirlit yfir lirossastofn þessara héraða, þó ég nefni
nú ekki ileiri.
Á þessu ári skiluðu 46 íelög skýrslu, en vantaði
skýrslu frá einu — Hrossar.fél. Staðarhr. í Skagafirði.
Félögin notuðu samtals 54 stóðhesta, en af þeim höfðu
35 hlotið I. verðlaun. Til þeirra voru leiddar alls 1924
hryssur.
Styrkur til hrossaræktarinnar var:
1. Til hrossaræktarfélaga:
a. Árlegur styrkur....... kr. 2886.00
b. Fóðurstyrkur l'. 4 hesta — 400.00
4