Búnaðarrit - 01.01.1937, Blaðsíða 138
118
BÚNAÐARRIT
apríl og skorið 17. sept. Gullbyggið var ræktað í ágælu
akurlendi og er þessi árangur að inestu því að þakka.
Sést hér, að miklu skiptir fyrir byggræktina, að hún
sé framkvæmd í góðu akurlendi, en ekki óræktaðri
jörð. Fjárhagslegur árangur af kornyrkju mun því
fara mikið eftir því, hvað gott akurlendi er, þar sem
hún er framkvæmd.
Tilraunum í kornrækt hefir verið haldið áfram sem
fyr, og með sömu viðl'angsefni og getið er um í síð-
ustu skýrslu minni. Bætt hefir verið við tilraunum
ineð vaxandi skannnta af fosfórsýru til byggræktar,
og sáðtímalilraunum með snemmþroska og seinþroska
hafra. Alls var 1935 reitafjöldi stöðvarinnar i kornrækt
349 talsins, viðfangsefnin 125 og landstærðin, sem
tilraunirnar ná yfir, 0,95 ha.
Kornræktin 1936 gekk vel í byrjun, þó klaki síðastl.
vetrar hamlaði allmikið góðri jarðvinnslu og hæfilega
þurru sáðbeði fyrir kornið. Víðast kom vel upp í
ökrunum, utan nokkrir smáblettir þar sem lægst var
og valn hafði staðið á klaka, þar gréri útsæðið ekki,
en fúnaði af langvarandi kulda og vætu.
Sprettu kornsins miðaði óvenju hægt, en varð ineð
ágætum þegar hlýnaði í veðri eftir 25. júní.
Byrjað var á uppskeru byggtegunda 4. sept., en hafra
eftir 10. s. m. og öllum kornskurði lokið 29. sept.
Mestallt al' korninu var slegið og bundið í rigningu.
Oll kornuppskeran náðist ekki fyrr en í byrjun nóvem-
ber, og hefir það aldrei orðið eins seint, ódrýgðist
uppskeran mikið, einkum það korn, sem var allan
tímann í smáskrúfum. Tæpur helmingur kornsins náð-
ist þó saman í stóra stakka og vörðust þeir ágætlega,
skiluðu þurru og góðu korni þegar þeir náðust, rétt
fyrir miðjan nóv. í haust. Allt kornið, byggið, hafr-
arnir og rúgurinn náðu þetta haust ágætum þroska,
og gefur vonir um gott útsæði, en það er enn órann-
sakað þegar þetta er ritað.