Dvöl - 01.01.1937, Blaðsíða 7
1.—2. hefti Reykjavík, jan,—febr. 1937 5. árg
Til lesendanna við áramötin.
Þegar Dvöl fór af stað fyrir ári síðan sem sjálfstætt tímarit,
spáðu margir henni stuttra lífdaga. Hér skal engu uni það spáð, hve
langir þeir verða. Útgefendurnir vissu fyrirfram, að það er enginn
fjárgróðavegur að gefa út rit eins og Dvöl. Bæði er lestrarfýsn líklega
heldur að minnka hjá þjóðinni, og svo vita flestir, að fjöldi fólks vill
helzt lesa skammir um náungann, „spennandi“ ásta- eða glæparómana
og þess háttar. En geti Dvöl ekki haldið áfram að flytja lesmál fyrir
greint, bókhneigt fóllc — fólk, sem er dálítið vandlátt á lestrarefni, þá
munu núverandi útgefendur fremur hætta við útgáfu hennar, heldur
en slá undan í efnisvali.
Dvöl mun koma út þetta ár — V. árg. — jafnstór og s.l. ár, þ. e.
íOO blaðsíður i sama broti. Hún mun flytja margar stuttar úrvalsskáld-
sögur eins og áður og margslconar fróðleik og annað skemmtiefni, fært
í letur af ritfærum mönnum. Gert er ráð fyrir, að á þessu ári flytji
Dvöl jafnan eina sögu frumsamda, á íslenzku, og er það gert meðfram
vegna óslca allmargra kaupenda. — Nokkrir lesendur hafa látið það
álit sitt i Ijós við Dvöl, að ritstjórar svona tímarita ættu að slcrifa tals-
vert í þau. Það getur verið gott og blessað stundum, en í slíku verður
að gæta hófs. Það gerir tímaritin fjölbreyttari og oft skemmtilegri, að
sem flestir höfundar láti til sín heyra. Forráðamanna ritanna er að
velja og hafna efni í þau, en eklci að gera lesendur hundleiða á sjálfum
sér eins og kemur fyrir um suma ritstjóra og fyrirlesara, sem alltaf
eru að reyna að láta sitt Ijós skína í tíma og ótíma.
Ætlunin er að láta tveggja mánaða hefti koma út saman þetta ár.