Dvöl - 01.01.1937, Page 13

Dvöl - 01.01.1937, Page 13
D V 0 [, 7 Guy de Maupassant Franski rithöfundurinn Guy de Maupassant, fullu nafni: Henri René Albert Guy de Mau- passant er fæddur á herragarð- inum Miromesnil í Seine-Infér- ieure-héraðinu 5. ágúst 1850 og dáinn 6. júlí 1893. Fyrst var svo til ætlazt, að Maupassant yrði embættismað- ur, og var hann því látinn stunda nám í smábænum Yvelot og síð- ar í Rouen. Þar kynntist hann tveimur þeim mönnum, sem ó- hætt að fullyrða, að hafi haft mest áhrif á framtíð hans, en það voru rithöfundarnir Bouil- het og Flaubert. Við það að kynnast þeim, vaknaði hjá Mau- passant lörgun til þess að verða sjálfur rithöfundur. Komst hann nú undir handleiðslu Flaubert, cg nam af honum listina. Er sagt, að sá skóli hafi reynzt Maupassant erfiður, en að sama En ég tók ákvörðun, og stakk upp á því við hann, að við skyld- um taka okkur skemmtiferð upp í sveit — þangað, sem við hefðum fyrst kynnzt. Hann samþykkti þetta, án þess að gruna nokkuð, og svo kornum við hingað um klukkan níu í morgun. Mér fannst ég vera orðin ung í annað sinn, þegar ég var komin hér á akurinn, því að hjarta kon- unnar eldist aldrei! Og satt að segja, þá sá ég manninn minn ekki eins og hann nú er, heldur eins og hann hafði verið áður! Það get ég lagt eið út á, herra n.inn. Það er eins satt og ég stend hér, áð ég var eins og ölvuð. Ég fór að faðma hann, en hann hefði ekki orðið meir undrandi, þótt ég hefði sýnt honum banatil- ræði. Hann endurtók í sífellu : — Hvað er þetta? — Þú ert ekki með öllum mjalla. — Hver djöfullinn gengur eiginlega að þér? En ég hlýddi ekki á hann, ég hlýddi einungis á rödd hjarta míns, og ég tók hann með mér inn í skóginn. Nú h'afið þér heyrt sögu mína. Ég hefi sagt sannleikann, Monsieur le Maire — ekkert nema sannleikann. Borgarstjórinn var vitur mað- ur. Hann stóð á fætur og sagði brosandi: — Farðu í friði, kona góð, og syndgaðu ekki framar — undir krónum trjánna. Henrik Thorlacius þýddi úr frummálinu,

x

Dvöl

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.