Dvöl - 01.01.1937, Page 25
D V Ö‘,L
19
— Ætlarðu langt?
— O, eg var að hugsa um að
skreppa upp í' sveit.
Sumarið var í bænum. Mold-
in angaði af gróðrarilm. Niður
við sjóinn görguðu máfarnir í sí-
fellu og tóku hliðarsveiflur í
loftinu. — Þessar verur, sem á
vetrum eru þögular eins og
dauðinn sjálfur, linntu nú ekki
látum, og arg þeirra og garg
rann saman við glaðværan klið
bæjarins.
Iijalti gamli var að stinga upp
garðinn sinn. Hann vann hægt
og ákveðið, og bletturinn með
upprótuðu moldinni stækkaði
jafnt og þétt. Húsdyrnar stóðu
opnar, og blár, léttur reykurinn
teygði sig þráðbeint upp í loft-
ið. — Þéttvaxinn kvenmaður kom
allt í einu út á dyrapallinn.
— Það er eins og annað með
hlutina í þessu húsi, og seg’eg
það enn. Maður skyldi ætla að
þú hefðir étið þá eða brennt
þeim. Þarna er eg búin að leita
mig dauða að gamla pilsgopan-
um mínum, og ekki ertu þó far-
inn að ganga í pilsum.
— Hugh.
— Og svo skíturinn! Þó eg
þvoi og sópi allan daginn og dag
eftir dag, þá skal maður alltaf
finna eitthvað. Ja, það var svei
mér ekki að f urða, þó að þú værir
íarinn að spyrjast fyrir um mig
upp á síðkastið.
— Eg spurðist ekkert fyrir
um þig. v
— Nei, ekkí, — ekkí? Annað
hefi eg nú heyrt, — annað hefir
mér nú verið sagt. Og var það
að íurða!
— Þetta eru ósannindi.
— Jú, ætli það, ætli maður
hafi heyrt það fyrr.
Orðin runnu saman við gargið
í máfunum og urðu hluti af
þessum margradda eilífa klið
bæjarins. Óaðgreinanlegur þátt-
ur, sem hvarf út í sumarmóðu
loítsins, hærra og hærra; lengra
og lengra.
Loks hvarf dagurinn sömu
leið. Flest hljóð þögnuðu, en
niðri við höfnina hélt hið þrot-
lausa garg máfanna áfram eftir
sem áður. — Fólkið svaf.
Við litla húsið beið hálfupp-
stunginn garðurinn eftir næsta
degi. Þar var allt kyrrt í bili.
En allt í einu var eins og dökkt
strik væri dregið yfir grasblett-
inn. Lítil svört vera stökk yfir
spýtnahrúguna og upp á þakið á
auða hundakofanum. Hún skaut
upp kryppunni og hvæsti ögr-
andi. Grábröndóttur köttur lædd-
ist lymskulega meðfram grjót-
garðinum og hvarf bak við
spýtnahrúguna. Svo varð allt
þögult og kyrrt á ný.