Dvöl - 01.01.1937, Qupperneq 34
28
D V O L
Kitti í Sel i.
Haustið 1932 dó á Svínanesi
í Barðastrandarsýslu gamall
maður, þá blindur og örvasa.
Kristján Sigfússon hét hann
og lengst af kenndur við Sel' —
nú eyðikot á miðri Svínaneshlíð
— og kallaður Kitti í Seli.
Mér er ekki kunnugt um, að
neinn byggi í Seli á undan Kitta.
Nú eru kofarnir fallnir, og áreið-
anlega býr þar enginn næstu
mannsaldrana.
Kotið var lítið’og bústofninn í
Seli var heldur ekki upp á marga
fiska. Kýr fyrirfannst engin, en
ein brúnskjótt hryssa — Sel-
Skjóna — sem bóndinn hafði
miklar mætur á. Ærnar voru
10—15, flestar mislitar: Hetta,
Hosa, Botna, Bílda, Flekka o. s.
frv. hétu þær. Á síðustu árum
voru 2 eða 3 geitur í kotinu, því
að Kitti færðist í aukana eins og
bændurnir í kringum hann, eftir
því sem leið á 20. öldina.
Ekki var ríkidæmi 1 Selinu,
svo sem geta má nærri; en Kitti
var gestrisinn og dóttir hans bjó
vil ágætt kaffi (konan hans var
vinstra. — Mælingatækin höfðu
stöðvazt og sýndu, að vélin hafði
náð 12,149 metra hæð, 447 metra
upp fyrir metið.
dáin, þegar ég man eftir). Fáir
gengu því fram hjá bæ hans, ef
þeir áttu leið um hlíðina, og stöku
langferðamenn gerðu sér bein-
línis erindi í Selið til að spjalla
við heimilisfólkið og kynnast líf-
inu í kotinu.
Sumir þykjast glögglega kann-
ast við svipmót Kitta á einni per-
sónunni í skáldsögu H. K. Lax-
ness, ,,Þú vínviður hreini“.
Kitti var á ýmsa lund öðrum
mönnum ólíkur. Hann var all-
mjög sér um siði og hirti lítt um
að troða götur fjöldans. Hann
minnti mjög á umrenninga eða
ílakkara fyrri alda. — Var sem
hann gæti ekki risið undir arfi
xortíðarinnar. Hann var oft á
ferðalagi. Rann um sveitina og
næstu byggðir og bað að gefa
sér. Stöku sinnum kom hann út
i eyjar — helzt vor og haust —
og Var þá jafnan með marga
tórna poka, þegar hann gekk upp
úr bátnum. Unglingarnir höfðu
af honum hið mesta gaman, sök-
um látbragðs hans og einkenni-
legs málróms, en ekki drógu þeir
úr því, að eitthvað væri látið í
pokana hans — og sjaldan mun
hann hafa snúið bónleiður til
búðar.
Oftast var hann svo upptekinn
og önnum hlaðinn í eyjaferðun-
um, að hann hafði ekki tíma til
í>. G. þýddi.