Dvöl - 01.01.1937, Side 37
I
D V O L
eða svipaða vegalengd eins og
frá Reykjavík austur að Selfossi
(Það er eftir veginum 59 km.
Bein lína miklu styttri). Brúar-
efnið þurfti að flytja langar
leiðir. T. d. voru staurarnir und-
ir brúna sóttir alla leið í
skógana í Lousiana og Kaliforn-
íu. Það þurfti 39.000 slíka staura
og þurfti að höggva niður til
þess 520 ha. skóg. Með smíði
Salt Lake brúarinnar var unn-
inn mikill sigur í baráttunni við
vegalengdirnar, en brúin kost-
aði 20 millj. króna, eða nálægt
300.000 kr. hver km., sem spar-
aðist.
Þó að baráttan við vegalengd-
irnar megi teljast höfuðbaráttan
fyrir spörun tímans, þá hefir
baráttan við brekkurnar líka
kostað peninga. Á 50 km. löng-
um kafla var hallinn á áður-
nefndri járnbraut 1:54. Til þess
að draga lestina upp á hæðina,
þurfti stundum 15 eimvélar, og þó
var hraðinn kannske ekki meiri
en 15—20 km.átíma. Með því að
leggja nýja braut, var hægt að
fá hallann 1:122, en við það gat
einn eimvagn dregið stóra lest á
fullri ferð. Þetta kostaði að vísu
nokkra fjárupphæð, eða á ann-
an tug milljóna, en tími sparað-
ist og þar með var markinu náð.
Annað amerískt járnbrautar-
félag notaði einu sinni 36 millj-
ónir til þess að geta sparað 20
mínútur af ökutíma. Þetta erþað
sem Ameríkanar kalla: „Spend-
31
ing millions to spare minutes"
(greiða milljónir fyrir að spara
mínútur). Við framkvæmd þessa
síðastnefnda verks þurfti að
sprengja 10.000.000 rúmmetra
af klöpp og jörð og fóru til þess
200 tonn af dýnamiti. Þessar
sömu 20 mínútur kostuðu 20
nýjar brýr, er voru frá 10 upp í
450 m. langar. Til smíði brúnna
fóru 170.000 rúmmetrar af stein-
steypu.
Við lifum á þeim tímum, er
hægt er að breyta tíma í pen-
inga, en ekki peningum í tíma.
.Þetta vita Ameríkumenn, en við
ísíendingar ekki. Allir hinir ó-
teljandi krókar á vegum okkar
eru ótvíræð sönnun þess, hve
hugsun okkar nær stutt í þess-
um greinum. Heimskan getur
stundum gengið svo langt, að
vegir séu lagðir inn fyrir firði
(Hvalfjörður) í stað þess að
sigla yfir, þótt ekki verði brúað.
Ameríkumenn greiða milljónir
fyrir sparaðar mínútur. í síðasta
dæminu voru greiddar 36 millj.
fyrir 20 mín. Það nemur 300.000
kr. fyrir hverja sparaða sekúndu
af ökutíma.
Leiðrélting.
I nokkm af upplagi siðasta heftis 4.
árg., bls. 37M, slæddist inn lina (44. lina
í fyrra dálki að neðan), sem átli að
leiðréttast prentvilla með í síðari dálki
sömu bls. Ef einhver kynni að vilja
sk'rifa pá línn, som fallið hefir úr, inn í
sitt eintak, pá er hún svona: og lögðutp
hann á hliðina um fjör-