Dvöl - 01.01.1937, Síða 57

Dvöl - 01.01.1937, Síða 57
D V Ö L 51 vera, námskeið, kappleikar, ýmiskonar verkleg og bókleg fræðsla. Þeir eiga að vera fyrir- myndar heimili, þar sem nem- endurnir geta tekið sem mest til eftirbreytni heim með sér, án þess að það sé svo óviðráðanlegt eða fjarlægt því, sem hægt er að framkvæma með litlum tekjum og við þröng kjör, eins og flestir verða við að búa. Það væri eðli- legt, að þeir væru sú stofnun héraðsíns, er nyti mestrar vel- vildar og virðingar. Það er ekki óalgengt, að hópar manna, kven- félög og aðrir, gefi kirkjum sín- um ljósahjálma, altarisklæði eða aðra dýra muni. Það er ekki ósennilegt né óviðfeldnara, að fólk í framtíðinni — gamlir nemendur og aðrir — sameinist um að klæða veggi héraðsskól- anna fögrum myndum, málverk- um, góðum bókaskápum og öðru, sem yrði til prýðis og nyt- semdar skólunum og til minn- ingar um þá, sem þar hafa verið og þann hlýleik, sem þeir hafa borið til skóla síns. Fagurt dæmi í þessa átt er frásögn í Ársrit- inu um drenginn, sem gaf Reykjaskóla bókasafnið sitt, áð- ur en hann dó og vini hans, sem sendu skólanum til minningar um hann látinn, eitt þúsund krónur að gjöf. Eitt af því, sem ferðamaður- inn tekur eftir, þegar hann kem- ur í suma erlenda skóla, t. d. háskólann í Oxford, er, hve þar er margt til minningar um þá, sem stundað hafa nám þar — og margt, sem sýnir ræktarsemi gamalla nemenda við skólann sinn. Það er eins og hvíslað sé í eyra ferðamannsins: Hér dvöldu trygglyndir og vinfastir nemendur, sem voru þakklátir fyrir þau menningaráhrif og þekkingu, sem skólinn veitti þeim. Við 'viljum halda sam- bandi við ykkur, sem á eftir komið og njótið þess, sem við höfum gert. Okkur langar til ,,að eiga þegar árin dvína eftir spor við tímans sjá“. Ykkar er að auka við og gera betur. Þó að bækur séu góðar og nauðsynlegar hverjum manni, sem eitthvað vill fræðast, þá er efamál, hvort ekki er ofmikið lagt upp úr bóklega náminu í héraðs- skólunum. Það er varla heppi- legt að vera að þvinga allan al- menning til að læra ýmsar námsgreinar, sem hann hefir lít- il not af í daglega lífinu, langi hann ekki til að nema þær — og þær námsgreinar, sem hver meðalgreindur maður getur vel orðið flotfær í, svo sem dönsku, sögu, landafræði o. f 1., án þess að sitja á skólabekkjum og kunna sínar lexíur, meðan kenn- arinn hlýðir yfir. Tungumála- staglið er hlutfallslega lítið menntandi og tímafrekt í skól- unum. Þó að málin séu lykill að bókmenntum annara þjóða, þá er sá lykill lítið notaður af al-

x

Dvöl

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.