Dvöl - 01.04.1942, Page 81
D VÖL
159
llöf u ii <1 arn i v
H. E. Bates
er maður tæplega fertugur, fæddur 1905.
Þeir, sem bezt eru dómbærir um slíkt.
telja hann og L. A. Strong ágætustu smá-
sagnahöfunda, er nú eru á lífi í Eng-
landi. En auk þess, sem hann hefir ritað
aragrúa smásagna, hefir og hann samið
langar skáldsögur, þótt ekki hafi hann
getið sér viðlíka hrós fyrir þær sem smá-
sögurnar. Fátt af sögum Bates mun hafa
birzt í íslenzkri þýðingu, þótt langt sé
síðan hann hlaut mikla rithöfundarfrægð.
Rabindrath Tagore
fæddist í Kalkúttu 1861. Faðir hans var
leiðtogi í andlegum málum og veitti syni
daglegum viðfangsefnum. Og til umhugs-
unar getur efni bókar líka verið, þótt
ekki sé öllu tekið með barnalegri trú-
girni. J. H.
sínum mjög gott uppeldi. 17 ára gamall
hóf hann háskólanám í Lundúnum. Eftir
heimkomuna frá Norðurálfu fól faðir hans
honum umsjá jarðeigna ættarinnar. En
eigi að síður hneigðist hugur hans að
bókmenntum og andlegum hugðarefnum.
Tók hann að yrkja og semja heimspeki-
rit, bókmenntarit og samtíðarlýsingar,
ýmist á bengölsku eða ensku. Áð'ur en
langir tímar liðu hlaut hann hina mestu
frægð, og voru honum veitt Nóbelsverð-
laun árið 1913.
Skáldskapur Tagore er þrunginn mann-
viti. Sem andlegur leiðsögumaður hefir
hann fetað í fótspor föður síns og gert
viðleitnina til þess að nálgast guð í
hreinum hugsunarhætti og blettlausu líf-
erni að grundvallaratriði. Brahma, hinn
eilífi, er í öllu, og hann má því alls staðar
tigna. En Tagore lét sér ekki þetta nægja.
Hann tók einnig mikinn þátt í þjóðernis-
baráttu Hindúa. Af menningu Norðurálfu-
manna og háttum hafði hann náin kynni,
eftir að hafa dvalið þar langdvölum og
ferðazt víða um lönd. Hann kom meðal
annars tvívegis til Norðurlanda.
Tagore andaðist í fyrra.
Ýmsar sögur eftir hann hafa verið
þýddar á íslenzku, þar á meðal Lífs eða
liðin, er birtist í 3. árgangi Dvalar í þýð-
ingu Sveinbjarnar Sigurjónssonar mag-
isters.
Tvær ljóðabækur hans, Farfugla og
Ljóðfórnir, hefir Magnús Á. Árnason þýtt
á íslenzku.
Pentti Haan'pad
fæddist í Piippola í Austurbotni 1
Finnlandi árið 1905. Var faðir hans bóndi
og jafnframt fréttaritari blaða austur
þar. Pentti Haanpáá er maður sjálf-
menntaður. Á unga aldri stundaði hann