Melkorka - 01.03.1958, Page 22

Melkorka - 01.03.1958, Page 22
STEFNUVOTTAR Eftir Oddnýju Guðmundsdóttur Ég vaknaði við undarlegan draum í morgun. Ég þóttist vera að tefla refskák. Betur ætti þó við að ganila konu dreymdi eitthvað um iðrunina og annað líf. Ekki veit ég nær kallið kemur. Merkilegast er þó, að mig dreymdi þenn- an sama draum lyrir sextíu árum, og það á sjálfa brúðkaupsnóttina. Ég er ekki að gera að gamni mínu. Þetta er satt. Aðrar brúðir dreymir um velmegun og barnalán. En mig dreymdi þetta. Mig dreymdi, að ég væri að tefla refskák. Ég var nítján ára. Og ég blygðaðist mín fyrir, að mig skyldi ekki dreyma fallegri draum en þetta. Fyrst, þegar ég opnaði augun, áttaði ég mig ekki á því, hvar ég var stödd. Maður svaf fyrir framan mig í rúminu, og mér varð bilt við. Á næsta augnabliki fékk ég ráð og rænu. Ég var gift kona og hafði lofað þessum manni öllu fögru í gær frammi fyr- ir prestinum og gott ef ekki Guði sjálfum. betta var í skammdegi. Kvöldið áður höfðu tólgarkertin brugðið hátíðlegum bjarma á veizluborðið og spariklætt heimil- isfólkið. Ljósin spegluðust í dökkum gluggarúðunum, og sálmasöngurinn vakti góðar og göfugar tilfinningar. Þetta var heimili mannsins míns. Ég hafði ekki gist þar áður. Ákaflega var allt ólíkt því, sem það var kvöklið áður. Dauf dagsbirta féll inn um fjögra rúðu glugga. Rúmið okkar hjónanna var úti við vegg, undir lágri skarsúð . . . Osköp var baðstofan lág. Fólkið svaf vært í rúmum sínum, þó að kominn væri fóta- ferðatími, því að seint hafði verið lagzt til hvíldar. I.óslitin og fornfáleg sparifötin lágu á kistum og rúmgöflum. En í Ijósbirtunni kvcildið áður sýndist mér allir svo vel klædd- ir. 22 Ég vakti ein og horfði kvíðafull í kring- um mig. Þilið undir glugganum á móti mér var allt skakkt og skælt. Tvær fjalir vant- aði, og strigapoki var hengdur fyrir gættina. Þar skreið könguló. Ég hafði ekki augun af henni. Ég veit ekki hvers vegna. Allt í einu datt mér draumurinn í hug. Var ég ekki að setjast við taflborð b'fsins? Hvernig mundi nrér takast að sneiða hjá hættunum og óláninu, sem lá í leyni fyrir vonunum mínum, eins og refurinn læðist kringum lambahjörð. Nú mundi ég það líka, að Iífinu er oft h'kt við tafl. Draumur- inn var þá ekkert ómerkilegur, þegar öllu var á botninn hvolft. Fólkið svaf. Ég hugsaði og hugsaði. Ég var nítján ára. Lífsbaráttan og fátæktin biðu mín í kaldri baðstofu, hjá ókunnu fólki. Manninn minn þekkti ég að minnsta kosti svo vel, að ég vissi um suma galla lians. Hér var um ævilánið að tefla. Ég mátti helzt engum leik tapa. Síðan eru sextíu ár. Sigurður minn dó fyrir átján árum. Hann fékk hægt andlát. „Gunna mín,“ sagði hann, við mig. „Það er mikill vandi að lifa. Þú hefur alltaf kunn- að það betur en ég.“ Þá flaug mér í hug, að ég hefði unnið taflið. Maðurinn, sem ég hafði verið gift í nærri fjörutíu ár, hlaut að vera rétti dómar- inn. í nótt dreymdi mig drauminn aftur. Það er líklega bending, að nú sé taflinu bráðurn lokið . . . Ojá, lífinu er löngum líkt við tal'l. Þá dettur mér allt í einu í hug, að ein- hverjum gæti orðið það til góðs, ef ég segði frá því litla, sem ég hef reynt um ævina. Ég gæti reynt að segja frá því, hvað stundum var flókið að tefla refskák við ólánið, og hvað munaði oft litlu, að ég léki vitlaust. MELKORKA

x

Melkorka

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Melkorka
https://timarit.is/publication/625

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.