Melkorka - 01.03.1958, Qupperneq 28
r
UTAN Ú R HEIMI
v__________________________________/
A fulltrúafundi Alþjóðasambauds lýðræðissinnaðra
kvenna, í Peking í apríl 1956, stakk indverski fulltrú-
inn upp <1 því, að samtökin athuguðu möguleika ú að
útbreiða og kenna um heim allan þær aðferðir, sem
notaðar eru til að stuðla að þjáningarlausum fæðing-
um. Uppástungan hefur nú verið rædd og ákveðið, að
Alþjóðasamhandið gefi út bækling til leiðbeiningar í
þessum málum. Undirbúningsnefnd hefur aflað sér
upplýsinga frá ýmsum löndum og hafa þær leitt í ljós,
að í 39 löndum hefur þessi stórmerka nýjung þcgar
gefið góða raun og er að ná mikilli útbreiðslu. I Sovct-
rikjunum og Kína cr hafin opinber kennsla í afslöpp-
un fyrir barnshafandi konur. Frakkar standa einnig
mjög framarlega í þessum efnum, þar sem heilbrigðis-
nefnd franska þjóðþingsins samjjykkti einróma, fyrir
tveiin árum, að styrkja rannsóknir og kennslu fæðingar-
sérfræðinga í þessum aðferðum. I>ar hafa námskeið
verið gefin út á hljómplötnm og hafa verið skráðar í
landinu um 10 þús. konur, sem fætt hafa þjáningar-
laust.
Bók AlJjjóðasambandsins verður fyrst og fremst
kennslubók, en Jiar verða einnig birtar skýrslur um
reynslu ýmissa þjóða varðandi þjáningarlausar fæðing-
ar og listar yfir fræðirit sérfræðinga. I>á hefur Aljijóða-
sambandið í hyggjti að láta gera kvikmynd, sem nota
mcgi á námskeiðum til hliðsjónar bókinni.
-K
Kvennasamtökum í Austurlöndum og löndum Suður-
Ameríku hefur orðið mikið ágengt í baráttu sinni fyrir
kvenréttindum, en víða Jiar njóta konur enn lítils
réttar og eru enn mjög fáfróðar um Jrjóðfélagsmál. I
Ilrasilíu hefur kvenfélagasamband landsins stofnað til
námskeiða fyrir konur í ýmsum borgum í landinu, J>ar
sem kennd er [jjóðfélagsfræði. barnavernd, skipulagn-
ing kvenfélaga á ýmsum sviðum, svo sem verkakvenna-
félaga o. s. frv. og saga kvenréttindahreyfingarinnar i
öðrum löndum. Kontir hafa þannig verið hvattar til að
krefjast og gæta réttar síns í Jjjóðfélaginu. I sambandi
við Jressi námskeið hafa svo vcrið haldin ýins önnur,
svo sem í lestri og ýmsum starfsgreinum, saumum,
tónlist, vélritun o. s. frv. Konur í landinu hafa nýlega
efnt til þings, til þess að fjalla um áskoranir til brasil-
ískra stjórnarvalda um að brcyta löggjöfinni varðandi
stöðu kvenna í Jijóðfélaginu, en í henni er hagur
kvenna mjög fyrir borð borinn.
Frá Indónesíu berast svipaðar fréttir. Kvennasam-
tökin þar hafa sett á stofn yfir 150 kvenfélög á eyjunum
og er meðlimatala þeirra orðin meir en /2 milljón
kvenna. Arið 1951 voru aðeins 6000 konur í kvcnna-
samtökum þar í landi. — Konur hafa ferðast um eyj-
arnar og haldið námskeið um þjóðfélagsmál og lieftir
Jiað orðið til þess, að konur láta nú æ meir til sín taka
í baráttunni fyrir betri kjörum og meiri réttindum.
A Italíii hafa konur hafið einhuga baráttu gegn
hækkun lífsnauðsynja, sem mjög kveður að þar um
Jjessar mundir. í janúarlok efndu þær til Jjings í Róm.
til Jiess að ræða hvað gera megi. Fjöldi ítalskra hag-
fræðinga, ýmsar menntastofnanir og blaðamenn hafa
veitt þessuin máluin stuðning.
-K
Stjórn Suður-Afríku herðir á kynþáttaofsóknum í
landinu og hefur nú aukið eftirlit með því, að hvítir
menn og svartir séu aðskildir í menntastofuunum lands-
ins. Ráðuneyti )>að. sem fer með mál innfæddra manna,
hefur tilkynnt, að stjórnin mnni eíkki Viðurkenna
lengur en til ársloka 1957 hina 6 kaþólsku menntaskóla
fyrir þeldökka menn. íif þessir skólar vilja halda áfram
starfsemi sinni, verður að reka Jiá sem einkaskóla. l’ról
frá þessuin skólum verða ekki viðurkennd opinber-
lega. Einum skóla fyrir þeldökka menn, sem stjórnað
var af kajiólsknin prestum, hefur Jiegar verið lokað.
Meðal þeirra, sem handteknir hafa verið í sambandi
við mótmæli viðvíkjandi kynþáttaofsóknum stjórnar-
innar, eru forseti og ritari Suður-afrísku kvennasamtak-
anna.
-k
Kona nokkur í Virginia í Bandaríkjunnm var sektuð
um 15 dollara fyrir að sitja við hliðina á negra á opin-
berum fundi. í Virginia nuila lög svo fyrir, að svart
fólk og hvítt verði að sitja í aðgreindum hópum á
opinberum stöðum.
/------------------------------------------\
KONUR!
Gerizt áskrifendur að
Melkorku.
V__________________________________________/
28
MELKORKA