Melkorka - 01.11.1958, Síða 9

Melkorka - 01.11.1958, Síða 9
VIÐTAL VIÐ SVEITAKONU Eftir Vilborgu Dagbjartsdóttur Oddný GuÖmundsdóttir. Ert, þú ekki til með, að segja lesendum Melborku eitthvað um sjdlfa þig? spyr ég (hldnýju Guðmundsdóttur. Hvaða ástæða er til þess svona upp úr þurru? Þu hefur oft. skrifað i Melkorku, og les- endurnir hafa gaman af að vita eittlivað um rithöfundana. Ég tel mig nú eiginlega ekki rithöfund. Ég er stundum að setja saman sögur í tóm- stundum mínum. Mér þykir það gaman. En ekki tel ég, að mér beri neinn gáfumanna- styrkur frá ríkinu fyrir þá iðju. Nei, ég tel mig ekki með rithöfndunum. Aftur á móti langar mig til að kalla mig kennara, en ég veit ekki, hvort ég má það, því að ég er >,réttlaus“, eins og það er kallað. Þegar tal- að er um „hæfa“ kennara í tímaritinu Melkorka Menntamálum og víðar, skilst mér, að átt sé við menn, sem hafa tekið kennarapróf. Hvernig finnst þér þjóðfélagið hafa búið að þér sem rithöfundi? Það hef ég aldrei liugsað um. En mér fannst þjóðíelagið ónotalegt í minn garð, meðan próflausir farkennarar voru í skamm- arkrók í launalögunum. Mér sárnaði aðal- lega lítilsvirðingin, sem fólst í þessu. Við vorum þó að vinna nauðsynjaverk, sem „hæfu“ kennararnir sneiddu hjá. En loks- ins fengu „fúskararnir" launajafnrétti á við (hugsanlega) kennaraskólamenn í sömu stöðu. Að vísu fá þeir þau ekki fyrr en eftir fimm ára starf. Og kennararéttindi fáum við ekki í þessu lífi. Þú hefur lengi stundað farkennslu. í þrettán ár, hér og þar um landið. Stund- kenni ég í tveimur hreppum sama vetur- inn. Einn vetur kenndi ég á sjö heimilum á Barðaströnd. Allt ágæt heimili. Ég kenndi líka á fimm heimilum lijá góðu fólki á Snæ- fellsnesi. Ég ætla að verða síðasti farkennar- inn á landinu. Þér fellur farkennslan svona vel. Það getur verið varasamt að segja það. Einu sinni ritaði ég grein um farkennslu í Tímann og lét þess getið, að mér þætti hún skemmtileg. Kennari fyrir norðan sagði í blaðagrein, að ég ætti skilið áminningu. Hvað mislíkaði honum svona? Ég held þetta, að ég skyldi ekki vera með ólund við kennsluna. Það er algengt víg- orð, að kalla þetta eða liitt „úrelt“. Og „aft- urhaldssemi" er vígorð, sem hrellir marga. En ég tel farkennsluna heppilega sums stað- ar á landinu, hvað sem hver segir. Kennari hér í Reykjavík sagði við mig, að bezt væri 81

x

Melkorka

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Melkorka
https://timarit.is/publication/625

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.