Melkorka - 01.11.1958, Qupperneq 21
NOTTIN HELGA
Jólasaga eftir Selmu Lagerlöf
l’cgar cg var fimm ára gömul, varð cg fyrir mikilli
sorg, svo mikilli, að cg gcl ckki skilið, að ég hafi orðið
fyrir annarri meiri sfðan, — þá dó atnma mín. Allt til
þess liafði hún setið hvern einasta dag á leguhekknum
í horninu á herberginu sínu og sagt sögur.
Mér finnst eins og amma hafi setið og sagt sögur frá
morgni til kvölds og við börnin setið þögul við hlið
hennar og hlustað á. I>að var yndislegt líf. Engin hörn
í heiminum áttu eins gott og við.
I>að cr ekki niikið, scm ég man uin ömmu. En ég
man að hún hafði fallegt, snjóhvítl hár, að hún gekk
tnjög lotin og að hún sat ævinlega á legubekknum og
prjónaði sokka.
Eg man llka, að þegar hún hafði sagt sögn, lagði
hún oft höndina á höfuð mitt og svo sagði hún: „Og
allt er þetta eins satt og að ég sé þig og að þú sérð
mig."
Svo man ég líka, að hún gat sungið vísur, en það
gerði hún aðeins stöku sinnunt. Ein af vísunum henn-
ar var um riddara og hafmey, og viðkvæðið i henni
var: „Kaldan Itlæs kaldan yfir sjóinn."
Og einnig get ég mtinað einn sálm og bæn, sem hún
kenndi mér.
IJm allar sögurnar, sem hún sagði mér, hef ég aðeins
veika og óljósa endurminningu. I>að er aðeins ein ein-
asta af þeim, sem ég man svo greinilega, að ég get sagt
hana aftur. I>að er ofurlítil frásögn um fæðingti Jesú.
ffg |>ctta er næstum því allt og sumt sem ég get mun-
að um ömniu mína, að því undanteknu, sem ég man
hezt, og það er söknuður minn, þegar hún var farin.
Ég man þann morgnn, þegar legnbekkurinn f horn-
hiu stóð auður, og það var óskiljanlegt hvernig dagur-
*!m gat liðið allur til enda. Það man ég. Því gleymi
ég aldrei.
Og ég man, að við börnin vorum leidd þangað inn til
að kyssa hönd hinnar látnu. Og við vorum hrædd við
að gera það, en þá var einhver sem sagði okkur, að
þetta væri í síðasta sinni, sem við ga-tum þakkað ömmu
fyrir alla |>á gleði, sem hún hefði veitt okkur.
Og ég man, að öllum vfsunum og sögunum var ekið
hurt frá bænum, lokaðar niður í langa, svarta kistu, og
að þær komu aldrei aftur.
Ég man, að það var eitthvað, sem var farið burtu úr
lífinu. Það var eins og dyrnar að stórri, vndislegri og
töfrandi veröhl, þar sem við áður höfðum getað gengið
frjálst út og inn, væru nú alveg lokaðar. Og nú var það
ciiginn sem hafði lykilinn að þessuni dyrum.
Og ég man, að við börnin lærðum smátt og smátt að
lci a okkur að hrúðuin og öðrum leikföngum og lifa
cins og önnur hörn, og þá gat litið út fyrir að við
söknuðum ömmu ckki lengtir eða myndum alls ekki
cftir hcnni.
En enn þann dag i dag, cftir fjörutfu ár, meðan ég
sit og safna ævintýrum um Krist, sem ég hcyrði í Aust-
urlöndum, vaknar í cndurminningu minni þessi litla
frásaga um fæðingu Jesú, sem amma var vön að segja
mér, og ég fæ löngun til að segja hana aftur einu sinni
enn og láta einnig hana kom inn í safnið mitt.
Það var á jóladaginn og allir voru farnir til kirkju
nema amma mfn og ég. Ég held að við tvær höfum
verið alcinar í öllu húsinii. Við höfðum ckki fengið
leyfi til að fara vegna þess, að önnur var of gömul en
hin of ung.
Og við vorum báðar hryggar yfir þvf, að við skyldum
ckki gcta farið með til að hlusta á guðsþjónustuna og
horfa á jólaljósin.
En meðan við sátum þarna í einveru okkar fór amraa
að segja frá:
„Það var einu sinni maður," sagði hún, „sem fór lit
f dimma nótt og barði að dyrum. „Hjálpið mér, hjálp-
ið mérl" sagði hann. „Konan mín hefur alið barn, og
ég verð að kvcikja eld til að hlýja henni og barninu."
En það var rauða nótt og allir sváfu. Enginn svaraði
honum.
Maðurinn hélt lengra og lengra. Að lokum upp-
götvaði hann ljósbjarma, líkt og af eldi langt f burtu.
Hann sneri þá við í þá átt og sá að bjarminn kom frá
báli, sem logaði á sléttunni. Hópur af hvftu fé lá þar
og svaf umhverfis eldinn, og gamall hirðir sat og gætti
hjarðarinnar.
Þegar maðurinn, sem vildi fá lánaðan eld, nálgaðist
fjárhópinn, sá hann að það lágu þrfr stórír hundar og
sváfu við fætur hirðsins. Þeir vöknuðu allir þrfr, er
hann kom og opnuðu stóra hvoftana, eins og þeir ætl-
uðu að gelta, en það heyrðist ekki nokkurt hljóð.
Maðurinn sá hár þeirra rfsa, hann sá hvassar tennur
MELKORKA
93