Valsblaðið - 01.05.2005, Síða 15
Ettir Guðna Olgeírsson
Sigurbjörn 14 ára á Dalvík íjiillum skrúða.
vatni. Ég vakti líklega athygli í skólanum
því ég var valinn í úrtakshóp fyrir 16 ára
landsliðið veturinn eftir en aldrei hafði
nokkur Dalvíkingur komist nálægt því.
Ég var síðan valinn í landsliðshópinn á
yngra ári og lék nokkra leiki með þessu
öfluga landsliði á Norðurlandamótinu og
í Evrópukeppni. Eftirminnilegustu leik-
menn í landsliðinu frá þessum tíma eru
menn eins og Gummi Ben., hann var
aðalmaðurinn í liðinu, Helgi Sigurðsson,
Pálmi Haraldsson, Ami Gautur Arason,
Kristinn Hafliða, Gulli Jóns og Stebbi
Þórðar. Þetta var hörkuhópur sem náði
vel saman og við komumst í úrslita-
keppni Evrópumóts 16 ára landsliða
árið eftir. Þar lentum við í dauðariðl-
inum með Spánverjum, Júgóslövum og
Sovétmönnum í 16 liða úrslitum í Sviss.
Við unnum Júkkana í fyrsta leik, töpuð-
um síðan naumlega fyrir Spánverjum í 2.
leik en þeir urðu síðan Evrópumeistarar.
Því miður töpuðum við fyrir Júkkunun
en líklega er þetta einn glæstasti árangur
sem 16 ára landslið frá Islandi hefur náð
á stórmóti. Þetta var þrusulið, ótrúlega
samrýmdur hópur og góðir vinir,“ segir
Sigurbjörn ákaflega stoltur. Sumarið
1990 lék Sigurbjöm með meistaraflokki
Dalvíkur í gömlu 3. deildinni, mest á
bekknum að eigin sögn, en kom inn á í
nokkmm leikjum.
Sigurbjöm Valsari haustið 1990
Sigurbjöm fluttist til Reykjavíkur ásamt
fjölskyldu sinni haustið 1990 og byrj-
aði að æfa með Víkingi en hann segir
að hugurinn hafi leitað í Val þar sem
hann þekkti nokkra stráka, t.d. tví-
burana Guðmund og Olaf Brynjólfssyni.
„Flokkurinn þeirra var gríðarlega sterkur
og það kitlaði mig að leika með honum.
Það skomðu ýmsir á mig að byrja í Val,
t.d. Kristinn Björnsson þjálfari en gamli
jaxlinn Brynjólfur Lárentsíusson pabbi
tvíburanna sannfærði mig á endanum
um haustið að ég ætti að Ieika
með Val. Hann kippti mér með
sér á uppskeruhátíðina hjá Val
um haustið og mér leist strax
vel á stemninguna og var mætt-
ur á æfingu daginn eftir með
3. flokki. Síðan varð ekki aftur
snúið. I þessum flokki var fullt
af öflugum leikmönnum, t.d. tví-
buramir Oli og Gummi, Kjartan
Hjálmarsson og Bjarki Sefansson
varnarjaxl. A eldra ári í 3. flokki
sumarið 1991 vomm við með
gríðarlega sterkt lið, að rnínu viti besta
lið landsins og við lékum til úrslita um
Islandsmeistaratitilinn við KR og töpuð-
um 1-0 minnir mig í seinni leiknum, sá
fyrri endaði með jafntefli, þetta var mjög
svekkjandi. Um haustið gengum við upp
í 2. flokk sem var mjög þunnskipaður,
t.d. enginn á miðári og fáir á elsta ári og
flokkurinn var í B-riðli þegar við komum
upp. Fljótlega var mér kippt í meistara-
flokkshópinn og ég æfði með þeim og 2.
flokki. Sumarið 1992 spilaði ég með 2.
flokki í B-riðli í skemmtilegu liði undir
stjórn Kristins Bjömssonar, en þjálfarar
meistaraflokks, Ingi Bjöm Albertsson og
Ólafur Magnússon aðstoðarþjálfari vom
tíðir gestir á leikjum 2. flokks,“ segir
Sigurbjöm.
Á bekknum í bikarúrslitaleik 1992
Sigurbjöm minnist þess að umgjörðin
í kringum þennan bikarúrslitaleik 1992
við KA hafi verið frábær, völlurinn troð-
fullur í upphitun og hann hafi svo sann-
arlega notið þess að vera í hópnum.
„Maður varð náttúrulega létt svartsýnn
þegar við lentum 2-0 undir í fyrri hálf-
leik, en ég hafði alltaf á tilfinningunni
að við myndum ná að jafna. I byrjun
seinni hálfleiks minnkuðum við mun-
inn í 2-1 þegar Porca tók aukaspyrnu
og Balli Braga fékk boltann í sig og
setti hann inn. Allan seinni hálfleikinn
vorum við I stanslausri sókn en ekkert
gekk, inn vildi boltinn ekki og öll nótt
virtist vera úti, áhorfendur vom famir
að halda heim á leið daufir í bragði og
starfsmenn voru byrjaðir að undirbúa
verðlaunaafhendingu og biðu bara eftir
að dómarinn flautaði til leiksloka. Þegar
7 sekúndur voru eftir af Ieiknum jafnaði
Tony (Antony Karl Gregory) með glæsi-
legu marki og dómarinn flautaði um leið
leikinn af. Stuðningsmenn Vals sneru við
og mættu aftur í stúkuna fyrir framleng-
inguna og hvöttu okkur áfram. Við rúll-
uðum síðan yfir KA í framlengingunni
og það var aldrei spuming um hvort liðið
myndi vinna en lokatölur voru 5-2 og við
trylltumst af gleði eftir þennan drama-
tíska bikarúrslitaleik. I þessu bikarliði
Vals vom margar gamlar kempur, t.d.
Bjarni Sig í markinu, Sævar Jóns, Steinar
Adolfs, Einar Páll, Balli Braga, Gústi
Gylfa, Salih Heimir Porca og Antony
Karl, Jón Grétar og Daði Dervic," segir
Sigurbjöm stoltur yfir því að hafa verið í
þessu sigursæla liði.
Langþráður bikarmeistaratill í höjn. Baldur Ingimar Aðalsteinsson, Sigþór Júlíusson
og Sigurbjörn Hreiðarsson ísigurvímu með bikarinn.
Valsblaðið 2005
15