Valsblaðið - 01.05.2005, Blaðsíða 72
Hlíðarendasjóður
Eftir Þorstein Haraldsson, Pétur Sveinbjarnarson og Lárus Hólm
Á gamlársdag 1914 gaf Bæjarstjórn
Reykjavíkur út erfðafestubréf fyrir 5,5
hekturum lands við enda Öskjuhlíðar
til Jóns Kristjánssonar, lagaprófessors.
Landið nefndist þá Vatnsmýrarblettur
XIV. Jón prófessor byggði á landinu
íbúðarhús, fjós, heyhlöðu og safngryfju,
ásamt fleiru. Leyfið fyrir þessum bygg-
ingum er gefið út 24. nóvember 1915.
Jörð sinni gaf Jón nafnið Hlíðarendi
og hóf á henni túnrækt. Jörðina fékk
Jón til ræktunar en ekki annarra afnota.
Ýmsar skyldur varðandi ræktun og
girðingar voru lagðar á hans herðar.
Nafnið Hlíðarendi virðist vera stytting
á Öskjuhlíðarendi því ekki á það rætur
í æskustöðvum eigandans sem fædd-
ist í Flensborg í Hafnarfirði og bjó svo í
Tjarnargötunni.
Uppdráttur Þórarins Kristjánssonar
hér að ofan er væntanlega elsta heimild
um Hlíðarenda, en hann er gerður í maí
1914. Þórarinn var verkfræðingur og
vann að járnbrautarlagningu úr Öskjuhlíð
og hafnargerð í Reykjavík. Hann hann-
aði ennfremur jámbraut um Suðurland,
en hún er sem kunnugt er ekki orðin að
veruleika. Þórarinn var lengstum hafn-
arstjóri í Reykjavík, en lést langt um
aldur fram. Kona Jóns var Ástríður
Hannesdóttir Hafstein.
Jón seldi Hlíðarenda til Sveins
Pálssonar snemma árs 1918. Sveinn
Pálsson var fæddur 3. desember 1881
í Vallarhúsum í Miðneshreppi og
dó 19. nóvember 1918 í Reykjavík.
Foreldrar hans voru hjónin Páll Jónsson
frá Geirlandi á Síðu, (1851-1932) og
Signður Höskuldsdóttir frá Hörgsdal,
(1850-1888). Páll bjó í Vallarhúsum
1880 og enn 1890, en Sveinn sonur hans
ólst upp austur í Mýrdal, en kominn er
hann til föður síns 1901 og eru þeir þá á
Kolbeinsstöðum í Útskálasókn. Sveinn
kom til Reykjavíkur 1904 frá Keflavík
og fór að læra skósmíði. Hans er fyrst
getið í bæjarskrá Reykjavíkur 1909 en
þar höfðu til þess árs aðeins verið skráð-
ir þeir sem voru eldri en 25 ára og héldu
heimili. Við manntalið 1910 er hann á
Bergstaðastræti 17 og titlaður skósmiður.
I sama húsi býr þá Sigríður systir hans
og Sigurður Jónsson hennar maður sem
dmkknaði 1925 á Leifi heppna. Sveinn
Pálsson kvæntist ekki og ekki finnst að
hann hafi átt afkomendur. Hann bjó alltaf
á Bergstaðastræti 17, sagður skósmiður,
72
Valsblaðið 2005