Bjarmi - 01.06.2003, Side 13
þessu og síðan ákváöu þær að
bjóða til hádegisverðarfundar í
Seattle. A þann fund komu yfir
100 konur. Starf Aglow byrjaði
sem sagt þarna en fljótlega fór
þetta að breiðast út. I dag, um 35
árum síöar, er Aglow starfandi í
152 löndum. Við höfum líka vaxið
mikið á þessum tíma og Aglow
starfið hefur líka breyst svolítið. í
dag heita samtökin: Aglow
International. Mikil áhersla er nú
á starf á meðal múslimakvenna og
erum við meðal annars meö virkt
starf í 42 af þeim 62 löndum sem
eru innan hins svokallaða 10 - 40
glugga, sem er svæðið frá 10. til
40. gráðu norðan miðbaugs og
nær yfir Afríku og Asíu, þar sem
erfiðast er aö komast inn með
fagnaðarerindið. Guð hefur gefið
Aglow starfinu ákveðna köllun.
Eins og ég sagði áöan, er markmið
okkar fyrst og fremst aö leiða
konur til Krists. Við tölum stund-
um um að þættirnir í starfinu séu
eins og ein hönd, eða fimm fingur,
eins og hönd Guðs. Það fyrsta er
sáttargjörð á milli karls og konu
og þá meinum við ekki bara inni á
heimilunum okkar, heldur líka í
kirkjunum og i samfélaginu al-
mennt. Við sjáum aö þaö er áætl-
un Guös að karl og kona starfi
saman í einingu. Síðan er það
bænastarf og trúboð. I fjórða lagi
er það múslimakonan og í fimmta
lagi er það ísrael.
Fyrir meira en tíu árum feng-
um við spádóma og köllun til aö
starfa á meðal múslimakvenna og
við höfum náð til þeirra með
fagnaöarerindið. Einn spádómur-
inn var þannig að Guð mundi gefa
Aglow-starfinu þráðinn sem
myndi rekja upp islam. Við skyld-
um mjög fljótt að þessi þráður var
konan. Þó að konan hafi ekki al-
menn völd í samfélagi múslima,
þá hefur hún mikil völd á heimil-
inu. Það er hún sem uppfræðir
börnin og drengina og við vissum
að ef við gætum náð til hennar
með kærleika Guðs, þá myndi hún
hafa áhrif á komandi kynslóðir.
Við trúum því að þetta muni ger-
ast smátt og smátt og Guð muni
rekja kerfiö upp. Síðan eru ekki
nema um 3 ár síðan að Guö talaði
til okkar um að hann vildi nota
Aglow-starfið á sérstakan hátt
W
w jÆjjrX 1
1
varðandi Israel. Við erum að fá þá
opinberun smátt og smátt, og viö
hlýðum því eftir því sem Guð sýnir
okkur meira. Guð vill nota okkur
til aö standa meö lýð sínum, Isra-
elsmönnum, þ.e. Gyðingum. Flann
ætlar að nota okkur til að blessa
þá og biöja fyrir þeim. Þetta höf-
um við gert og fáum alltaf ákveð-
in bænarefni frá alþjóðastjórninni
varðandi Gyðinga. Það hafa líka
verið farnar ferðir til ísraels, sem
eru fyrst og fremst hugsaðar sem
bænaferðir. Ég tók þátt í einni
svona ferð í maí í fyrra og síðan
var önnur ferð farin núna í byrjun
júní. Það er í raun og veru alveg
stórkostlegt aö sjá greinilega
áætlun Guös, aö hann vill nota
Aglow starfiö á einhvern sérstak-
an hátt til að blessa ísraelsmenn
og fá aö biðja fyrir þeim. Það
hafa gerst ótrúlegustu hlutir í
þessum bænaferðum og Guð hef-
ur opnað dyr á mjög sérstakan
hátt. Guð hefur gefiö okkur tæki-
færi sem aðrir hafa ekki fengið.
Getur ekki lika veriö að konur
komist iengra vegna þess að menn
iita ekki á þœrsem sömu ógn og
karimenn?
Einmitt, ég tel það eina
ástæðu þess að við erum leyni-
vopn Guðs. Það er oft ekki litið á
konur sem sömu ógn, en samt
hefur konan innsæi og næmi og
hún hefur lika oft gífurlegt áræði
og djörfung. Ef hún er fyllt af
Fleilögum anda og finnur að Guð
er að kalla hana, þá held ég að
fáir hlutir stöðvi konuna, á sama
hátt og við erum tilbúnar að
vernda börnin okkar fram í rauðan
dauöann. Ég held að Guð noti
þetta líka í starfi á meðal kvenna,
vegna þess að ef við finnum virki-
lega að Guð er að kalla okkur, þá
erum við tilbúnar að ganga alla
leið.
Ed og Edda Matthí-
asdóttir Swan. Þau
hjón voru lengi virk í
starfi Lútherskrar
hjónahelgar.
Fyrir meira en tíu árum fengum við
spádóma og köllun til að starfa á
meðal múslimakvenna og við höfum
náð til þeirra með fagnaðarerindið.
Þú hefur því nóg að gera?
Já, ég er sem sagt formaður
landsstjórnarinnar hérna og í
fimm manna nefnd sem fer fyrir
starfinu í Evrópu. Við berum
ábyrgð á þvi að sjá um leiötoga-
fræðslu fyrir allar landsstjórnirnar
í Evrópu einu sinni á ári. Þá er
venjulega einhver okkar sem sinn-
ir fræðslunni og síðan fáum viö
einhvern utanaðkomandi til að
vera með hluta hennar. Á fimm
ára fresti höfum við síðan verið
með opin Evrópumót fyrir alla,
13