Bjarmi - 01.10.2003, Page 12
Ragnar Schram
Klám
á meðal
kristinna
Langflestir íslendingar hafa að-
gang að Netinu. Þangað sækir
fólk gagnlegar upplýsingar og af-
þreyingu sem aldrei fyrr. Allir vita
að klám finnst á Netinu og vex
sá hluti þess með ógnarhraða.
Þannig hefur t.a.m. fjöldi þeirra
síðna sem bjóða upp á barnaklám
margfaldast á einu ári.
Klám á Netinu er vinsælt og
veltir milljöröum króna á ári hver-
ju. Rannsóknir sýna að stór hluti
þeirra sem hafa aðgang að Netinu
heimsækja klámsíður þess reglu-
lega. En hvað með kristið fólk?
Hingað til hafa kirkjur heimsins
lýst vanþóknun sinni á klámi án
þess að klámumræöan innan
hennar hafi rist mjög djúpt.
Tímaritið Christianity Today
hefur í nokkur ár birt fróðlegar
greinar um klám og tengsl þess viö
í dag geta þeir sökkt sér í klámið
án þess að horfast í augu við af-
greiðslufólk bókaverslana, bensín-
stöðva, myndbandaleiga eða annarra
sölumanna sem reyna að koma
kláminu að hjá neytendum.
kirkju og kristni. Svo virðist sem
kristnir menn komi í auknum mæli
„út úr skápnum" - viðurkenni
klámfíkn sína og ræði hana sem
eitt helsta fótakefli sitt á göng-
unni með Guði. í þessari grein er
stiklað á stóru í skrifum blaðsins
um klám á meðal kristinna.
Sagan af Clay Cross
Clay Cross var aðeins níu ára þeg-
ar augu hans litu klámefni í fyrsta
skipti og það sem hann sá þann
dag virtist festast í huga hans.
Hann hafði fallið í gildru og þó
svo að hann tæki ákvörðun um að
fylgja Kristi nokkrum árum síðar
sagði hann síður en svo skilið við
klámið.
Clay hefur í mörg ár notið
nokkurrar hylli sem kristinn dæg-
urlagasöngvari. Aheyrendur hans
hafa þó varla gert sér grein fyrir
að í meira en tuttugu ár glímdi
söngvarinn við klámfíkn. Hann
skammaðist sin þó fyrir fíknina og
sagði engum frá henni, ekki einu
sinni eiginkonu sinni. Þannig
hindraði klámið samband hans við
bæöi eiginkonuna og Guð.
Fyrir nokkrum árum opnuðust
augu Clays og hann gerði sér
grein fyrir að nú þyrfti hann að
losa sig úr þeirri gildru sem hann
var fastur í. Um þetta leyti fann
Clay að hann gat ekki endalaust
verið áhorfandi og fyrr eða síöar
myndi hann leita til vændiskvenna
til að svala fíkn sinni. Hann gat
ekki lengur þóst lifa góðu trúarlífi
og látið ítrekað undan fíkninni á
bak viö tjöldin. Clay tók loks þá
ákvörðun að segja skilið við klám-
ið og tókst það með Guðs hjálp. í
dag er hjónaband hans mun
sterkara en áður og það sama má
segja um samband hans við
Drottin. Geislaplatan „A Different
Man" fjallar um þær breytingar
sem urðu í lífi Clays þegar hann
snéri baki við kláminu og leyfði
Guði aö græða sárin sem klámiö
hafði skilið eftir á sálinni.
Margir mæta freistingunni
Dr. Mark Laaser kynntist kláminu á
unglingsárum. Þegar hann gerðist
prestur fylgdi klámið honum eins
og skuggi og þegar klámið var ekki
nóg leitaði hann til vændiskvenna.
Hann hélt fíkn sinni leyndri enda
vissi hann aö klámið og starfið í
ríki Guðs gætu ekki farið vel sam-
an. Þetta var fyrir tíma Netsins,
þegar menn þurftu að fara í þar til
gerðar verslanir til að nálgast
klámiö. Nú geta menn hins vegar
setið umvafnir friöhelgi heimilisins
(eða á skrifstofunni) og opnað fyr-
ir heim klámsins með því einu að
smella á tölvumúsina. Og enginn
sér... eða hvað?
Mark hefur nú sagt skilið við
klámið og hjálpar klámfíklum aö
losna úrsnörunni. Hann hefur
skrifaö bækur um efnið og er vin-
sæll fyrirlesari.
Fyrir nokkrum misserum birtist
grein um ungan, ónafngreindan,
bandarískan prest í Christianity
Today. Safnaðarstarfiö gekk vel,
hann var eftirsóttur ræðumaður,
átti yndislega konu og dóttur en
þrátt fyrir alla velgengnina og
blessanirnar var hann háður
klámi. Hann átti þaö til að læsa
að sér í vinnunni og vafra um
klámsíður Netsins að loknum vel
hepnuðum samkomum.
Þessi rúmlega þrítugi maður
tilheyröi um tíma ört vaxandi hópi
leikmanna, presta og safnaðar-
leiðtoga sem hafa orðið háðir
klámi á Netinu. Hann reyndi að
losna úr hrömmum klámsins upp
á eigin spýtur en tókst ekki. Hann
ákvað þá að leita sér hjálpar hjá
sérfræðingum og hefur nú endur-
lífgað hjónabandið og verið laus
viö klámið í nokkur ár.
12