Bjarmi - 01.10.2003, Blaðsíða 24
Ljósmyndir: Myndasafn KFUM og KFUK.
tímaáhrif ofbeldis sem er oröiö
jafnsamofið tilveru okkar og sjón-
varpið er orðið. Flestir fræðimenn
eru sammála um einhver áhrif
þessa á langtímahegöun fólks.
Þessu má sjá stað í breyttri sam-
skiptahegðun manna á milli.
Spörk í höfuð og andlit, jafnvel
liggjandi manna, má rekja til
áhrifa frá fjölmiölum. Þetta er
eitthvaö sem ekki er haft fyrir
fólki á heimilum. Áhrif ofbeldis
minnka ef talað er viö barniö um
efni myndar og gerður greinar-
munur á veruleika og óraunveru-
leika. Mikilvægt er fyrir foreldra
að sitja með börnum sínum og
ræða það sem þau verða vitni að:
Það sem veldur mestum
áhyggjum í dag eru tölvuleikirnir.
Flest börn í dag hafa aögang að
heimilistölvu eða þau eiga sína
eigin. Mörg börn og ungmenni
eyða meiri tíma í tölvuleiki en við
sjónvarpsáhorf eða kvikmyndahús.
Stór hluti af vinsælustu tölvuleikj-
unum er gegnsýrður af grófu of-
beldi sem gengur út á að drepa,
særa og pynta. Leikirnir í dag eru
orðnir flóknari, grafíkin ótrúlega
raunveruleg og hver sem vill getur
notið þeirra í sjónvarpinu heima
eða heimilistölvunni. Þróunin er
hröö og þessir leikir þróast ört.
Sýndarveruleikinn er handan
hornsins og þá verður heimur
leikjanna enn raunverulegri en
nokkru sinni fyrr. Þátttakandinn
verður staddur mitt í atburða-
rásinni.
Börn og ungmenni sitja gjarn-
an ein eða með vinum sínum í
herbergjum sínum og spila leiki
sem oft eru uppfullir af ofbeldi.
Það sem er enn alvarlegra í tölvu-
leikjum en myndum, er aö í leikj-
unum eru það börnin sem eru
gerendur, þ.e. þau ráðast á og
drepa. Margir foreldrar vita ekki
hvað er að gerast í herbergjum
barnanna og um innihald leikj-
anna. Foreldrarnir hafa oft litla
tölvuþekkingu og hafa jafnvel ekki
spilað tölvuleiki og þó þau hefðu
einhverja tölvuþekkingu þá
kæmust þau ekki oft á tíðum í
gegnum tölvuleikinn og vita því
lítið um innihaldið. Sérfræöing-
arnir eru oft yngri en fimmtán ára
gamlir. Auk þess geta fáir full-
orönir varið eins miklum tíma og
börnin í tölvuleiki. Ofbeldið í
tölvuleikjum virðist aukast iðulega
þegar líöur á leikinn og þess
vegna þarf að fara í gegnum hann
allan til að fá heildarmynd af of-
beldinu.
Foreldrar hafa oft keypt þessa
tölvuleiki fyrir börnin sin í góöri
trú og ekki haft grun um innihald
hans. Þegar heim er komiö og
barnið fer að spila kemur í Ijós að
hausar fjúka og fólk er drepið um-
vörpum. Vert er því að vara for-
eldra við þessum ofbeldisleikjum
og hvetja þá til að afla sér upp-
lýsinga um leikina áöur en þeir
eru keyptir. Hægt er aö fá upplýs-
ingar í verslunum sem selja þessa
leiki og fá má nákvæmar upplýs-
ingar um innihald. Ekki má
gleyma i þessu sambandi að á
markaðinum er fjöldi leikja sem
ekki eru ofbeldisleikir eins og
íþróttaleikir, flestir SIM-leikir og
fleiri sem hafa mikið skemmtana-
og fræðslugildi.
Uppeldi hinnar útréttu handar
Kristur hafnaði öllu ofbeldi og við
ættum því að taka virka afstööu
24