Bjarmi - 01.10.2003, Page 31
þjálfun í því að syngja gospel. Mótinu lauk
á sunnudagskvöldi meö tónleikum þar sem
allir þátttakendur voru meö í kór og voru
margir sem lögðu leið sína til að njóta
tónlistarinnar og fóru allir glaðir heim.
Þaö skemmdi ekki fyrir að veðrið var
gott og aöstaðan er alltaf að batna.
Jón Þór Eyjólfsson framkvæmdastjóri
Hvítasunnukirkjunnar á islandi
Einbeiting viö föndurvinnu á fjölskyldumóti.
Kristilegt mót í Hlíðardalsskóla
Að vanda hélt kirkja Sjöunda dags að-
ventista kristilegt fjölskyldumót í Hlíðar-
dalsskóla um verslunarmannahelgina.
Þetta er mót þar sem öllum sem vilja er
velkomið að taka þátt. Staðurinn býður
upp á gistirými fyrir um 100 manns. Þar
að auki gistu nokkrar fjölskyldur sem
sóttu mótið í tjöldum og tjaldvögnum.
Einnig sótti mótið fólk sem gisti heima
hjá sér svo í allt voru á þriðja hundrað
manns á mótinu þegar mest var.
Samkoma á fjölskyldumóti um verslunar-
mennahelgina í Hlíöardalsskóla.
Aðalræöumaður mótsins, dr. Walter
Veith, háskólakennari frá Suður-Afríku,
hélt gangmerkt erindi um sköpun og þró-
un þar sem hann færði rök fyrir sköpunar-
sögunni og flóði i samræmi við kenningar
Biblíunnar. Dr. Veith, sem sjálfur var um
árabil yfirlýstur þróunarsinni og guðleys-
ingi, hafði oft gert lítið úr „einfeldning-
um" á meðal nemenda sinna, sem voru
sköpunartrúar, snérist til lifandi kristinnar
túrar á átakamikinn hátt. Frásögn hans
um merka trúarreynslu sína hafði gagnger
áhrif á mótsgesti. Einnig fjallaöi dr. Veith
nokkuð um heilsumál þar eö næringarlíf-
fræði er sérstakt rannsóknarsvið hans.
Dr. Walter Veith frá Suður-Afríku, aöalræöu-
maöur mótsins.
WalterVeith prédikaði á aðalguösþjón-
ustu mótsins á laugardeginum kl 11 og
einnig á sunnudeginum kl. 11 þegar guðs-
þjónustu var útvarpað frá mótinu í Rikis-
útvarpinu. Efni hans þá var sannleiksboð-
skapur kristinnar kirkju fyrir daginn i dag
um kærleika Krists í kærleikssnauöum
heimi en einnig að kristinni kirkju ber að
vera óhrædd á okkar tímum að sinna
skyldu sinni að láta berast skýrt kall Krists
til heimsins um iðrun og afturhvarf til
undirbúnings dýrðlegri endurkomu hans
og viðleitni til að halda á lofti siöferöis-
merkjum Krists í siöspilltum heimi.
Unglingahópur á góðri stund á fjölskyldu-
móti.
Sérstakar dagskrár voru að vanda
skipulagðar fyrir börn og unglinga á mót-
inu þar sem þeirra þörfum var sinnt. Unga
fólkið sá um lofgjörðarsamkomu með
söng og vitnisburðum fyrir alla mótsgesti
á sunnudagskvöldinu. Þá tók við hjá þeim
söngstund umhverfis varðeld, siðan leikir
úti á túni og að lokum sundsprettur í
sundlaug staðarins svo þau komust ekki i
rúmið fyrr en langt var liðið á dimma
ágústnóttina.
Mótsgestir sneru heim snortnir af
áhrifaríkum boöskap, yndislegri samveru
hverjir við aðra og ekki síst áþreifanlegri
nærveru Anda Guðs á góöu sumarmóti.
Eric Guðmundsson
Eyjólfsstaðir
Á Eyjólfsstöðum, starfsmiðstöö íslensku
Kristskirkjunnar á Austurlandi, var haldið
mót um verslunarmannahelgina. Eyjófs-
staöir eru um 10 km frá Egilsstöðum við
hringveginn. Um nokkurra ára skeiö voru
haldin mót þar um verslunarmannahelgi
en nú hafa þessi mót verið endurvakin og
var mótið í ár það fyrsta eftir nokkurra
ára hlé. Um 50 manns voru samankomnir
til að lofa Guð og íhuga hans orö. Á Eyj-
ólfsstöðum er rekin gistiþjónusta á sumrin
samhliða kristilegu starfi og er því öll að-
staða mjög góð og gistu flestir mótsgestir
í þeim 20 herbergjum sem i boði voru en
þátttakendum stóð einnig til boða að vera
í tjaldi og i fullu fæði.
Yfirskrift mótsins var „Allt vald er mér
gefið á himni og jörðu. Farið því og gjörið
allar þjóöir að lærisveinum..." (Matt.
28:18-19) og var öll fræðsla miðuð út frá
því. Yfirskriftin var í samræmi við þaö sem
VISBO-ingar höfðu verið að fást við síð-
ustu tvær vikurnar í júlí. VISBO stendur
fyrir Vlnna, Skemmtun og BOðun. Um 20
unglingar á aldrinum 13-19 ára frá Aust-
urlandi og höfuöborgarsvæðinu komu
saman til þess að gera einmitt þetta.
Unga fólkiö vann ýmis störf á Eyjólfsstöð-
um, átti fræðslu- og bænastundir, fór í
sund og fjallgöngu og ýmislegt annað
skemmtilegt. Síðan hélt það samkomur og
fór í boðunarferöir þar sem það dreifði
bæklingum, sýndi dans og leikþátt. VISBO-
ingar tóku mikinn þátt í mótinu og sáu
meðal annars um eina samkomu.
Mótiö var opið öllum og kom fólk frá
Austurlandi og höfuðborgarsvæöinu. Fyrir
hádegi voru fræðslustundir þar sem yfir-
skriftin var brotin til mergjar og voru þaö
Friðrik Schram, prestur íslensku Krists-
kirkjunnar, og Unnar Erlingsson sem sáu
um þær. Á sama tíma var sérstök fræðsla
fyrir börnin. Eftir hádegi var hins vegar
léttari dagskrá þar sem m.a. var boðið upp
á ratleik, sundferð og frásagnir af kristni-
boði. Á kvöldvökum var mikið sprellað og
hláturtaugar fólks voru kitlaðar út í ystu
æsar. Á sunnudagskvöldið var varðeldur
þar sem sungið var og trallaö eins og sést
á myndinni. Mikil áhersla var lögö á lof-
gjörð á mótinu og var það Oddur Carl
Thorarensen sem leiddi mótsgesti í henni.
Ólafur Schram
31