Búnaðarrit - 01.01.1962, Blaðsíða 30
26
BÚNAÐARRIT
garnaveikinni. Var efnt til funda um málið, og kosið full-
trúaráð — þrír frá hverjum hreppi. — Það kaus sér svo
framkvæmdanefnd:
Hafsteinn Pétursson, formaður, Bjarni Ó. Frímanns-
son, ritari, og meðstjórnendur Tohías Sigurjónsson, Magn-
ús Sigmundsson og Helgi Magnússon.
Hafsteinn var kosinn formaður. Var samið frumvarp
að samþykkt um fjúrskipti á fundi, sem lialdinn var í
Bólstaðarldíð 15. sept. 1946. Það var sent sauðfjársjúk-
dómanefnd og landbúnaðarráðuneytinu. Þeir aðilar synj-
uðu því staðfestingar, og færðu þau rök fyrir, að ekki
mundi unnt að flytja inn á svæðið austan Blöndu nema
30% af þeirri fjártölu, sem ákveðin væri í lögum um fjár-
skipti, ef þau væru og framkvæmd vestan Blöndu haustið
1948, og þar bætt að fullu eins og lög stóðu til, og fyrir-
lieit liöfðu verið gefin um, og frá því óskaði enginn að
linikað yrði.
Þessi synjun varð mörgum hin mestu ótíðindi vegna
hræðslu við garnaveikina. Það virtist augljóst, að garna-
veikin hefði borizt með sláturfé, sem rekið var austan
yfir Vötnin, yfir Nesið til Sauðárkróks. Sýndist því
mörgum ótryggt um slóð þess vestan vestari Vatna, að
þeirri staðreynd þó ógleyindri og áður er getið, að sýkt
fé liafði áður gengið sumarlangt í Staðarfjöllum a. m. k.
sumarið 1945. Ákvað þ ví framkvæmdanefndin, að enn
skyhlu kannaðir liugir manna til málsins. En nú þurfti
ekki djúpt að grafa. Bændur reyndust ótrúlega samstæð-
ir. Var því talið einsýnt, að áfram skyhli haldið.
Hér kom vel fram það, sem áður er bent til um Haf-
stein, hin óvenju trausta samstaða þeirra, sem voru nán-
astir samstarfsmenn hans. Hik virtist ekki geta komið
til mála ineðal þeirra. Var efnt til fulltrúafundar í
Varmahlíð, og þar ítrekaðar óskir um staðfestingu sam-
þykktarinnar. Jafnframt var ákveðið að leita undirtekta
manna um að farga öllu sauðfé á svæðinu, þó samþykkt-
in fengist ekki staSfest, né fullnaðarloforð um lögmæt-