Heilbrigðismál - 01.10.1973, Blaðsíða 12
Meðal hinna mörgu og margvíslegu lík-
amlegu, ertandi kvalrœða, sem fólk verður
fyrir, getur tinnitus-suða fyrir eyrum — senni-
lega verið með þeim óþcegilegustu. Fólki
finnst það vera hálf ringlað og á erfitt með
að einheita sér. Suðan hefur líka áhrif á
heyrnina, þannig að fólk gripur ekki það,
sem sagt er í kringum það.
Þetta er ástand sem iðulega á sér stað. A-
litið er að um það bil 10. hver maður, sé með
Suða fyrir eyrum
einhverjar heyrnatruflanir og meðal þeirra
eru nokkrir svo illa farnir af heyrnarleysi, að
þeir geta ekki heyrt mannsraddir.
Tinnitus er Jæknisfræðilega heitið á hljóð-
um inni í höfðinu og meðal þeirra er suða
fyrir eyrunum, sem oft líkist fræsihljóði. Þetta
bendir til, að allt heyrnarkerfið sé undir á-
hrifum einhverrar annarlegrar ertingar.
Hvernig á því stendur, að eyrnamergur í
hlustinni getur orsakað slíka ertingu, er hul-
inn leyndardómur, en það er staðreynd að
þess konar suða fyrir eyrum kemur oft ásamt
svima.
Langoftast, og einkum þegar heyrnarmiss-
irinn orsakast af skemmd í heyrnartauginni,
kemur suðan fram sem hringing eða hljóm-
ur, á takmörkum hljóðmagns, sem annað-
hvort heyrist greinilega eða mjög dauft.
eins 1 af hverjum 5 sykursýkissjúklingum
þarfnast insúlíns í sprautum.
2. Töflugjöf: Um helmingur þeirra, sem
ekki fær sprautur kemst af með töflur. Þar
er aðallega um 2 tegundir að ræða: Sulfoyl-
urea flokkurinn, sem losar insúlín úr bris-
kirtlinum og biguanintöflur, er auka verkanir
insulínsins, sem þegar er í blóðinu.
3. Mataræði: Allir sykursýkissjúklingar,
nema ef til vill smábörn, verða að breyta
mataræði sínu og vera á sérstaklega völdum
kosti. Oft tekst að gera mataræðið svo full-
komið, að hvorki þurfi á insúlíni né töflum
að lialda. Það liggur því í augum uppi, að
10
mataræðinu verður að fylgja af mikilli kost-
gæfni.
Það er flestum læknum ljóst, að sykur-
sýkissjúklingar og reyndar þjóðirnar í heild,
þyrftu að vita miklu meira um sykursýki en
nú gerist. Þetta er áríðandi til þess að fólk
geti verið á verði, svo að sjúkdómurinn finn-
ist snemma og fái hina réttu rneðferð.
Langvarandi heilbrigði þeirra, sem eru
með sykursýki, byggist mjög á þekkingu og
skilningi sjúklinganna sjálfra á sjúkdómnum
og samúðarfullri afstöðu þjóðarinnar. Sykur-
sýki er víða algengust langvinnra sjúkdóma
og tíðni hennar fer vaxandi um heim allan.
Bj. Bj. þýddi.
FRÉTTABRÉF UM HEILBRIGÐISMÁL