Heilbrigðismál - 01.10.1976, Side 9

Heilbrigðismál - 01.10.1976, Side 9
ríður Pétursdóttir hafði farið til Bandaríkjanna á vegum Krabbameinsfélaganna til að læra þessa tækni og vann að frumurannsóknum í þessu skyni í Leitarstöð A um skeið. Krabbameinsskráning. Til þess að afla sem nákvæmastra upplýsinga um útbreiðslu og tegundir illkynjaðra æxla hér á landi var hafin á vegum Krabbameinsfélags íslands svonefnd krabbameinsskráning í byrjun árs 1954. Höfundur þessarar greinar hefir haft umsjón með upplýsingasöfnun þessari frá upp- hafi þar til á miðju s.l. ári að Hrafn Tuliníus læknir var ráðinn forstöðumaður skráningar- innar í fullu starfi. Fullyrða má að ísland bjóði upp á einstaka möguleika til faraldursfræðilegra rannsókna á illkynja æxlum sem og ýmsum öðrum sjúkdómum. Vegna fólksfæðar verða hins vegar ekki dregnar öruggar ályktanir af slíkum athugunum nema þær spanni yfir all- langt tímabil. Sá efniviður sem safnað hefur verið á 20 ára starfstíma krabbameinsskrán- ingarinnar er nú fyrir hendi til slíkra rannsókna. Ýmsar gagnlegar upplýsingar hafa fengist úr þessum efniviði á umliðnum árum. Hafa þær m.a. verið nýttar í ritgerð um tíðni hinna ýmsu krabbameina á Norðurlöndum í samvinnu við krabbameinsskráningar á hinum Norður- löndunum. f'UÖrún Bjamadóttir, Torfi Bjarnason og Ingibjörg Karls- dóttir, starfsmenn krabbameinsskrár. i -jósrn.: Stúdíó Cuðmundar. kéttobwÉ um hedbwgóismói Einn liður í þessum rannsóknum er samvinna við Erfðafræðinefnd Háskólans um rannsókn á krabbameini í brjósti hér á landi. í þeim rann- sóknum er auk upplýsinga krabbameinsskrán- ingarinnar byggt á efnivið er dr. Gunnlaugur Snædal formaður Krabbameinsfélags Reykja- víkur safnaði er hann vann að doktorsritgerð sinni um brjóstakrabbamein hér á landi. Samvinna við erlenda aðila. Allt frá upphafi hefur Krabbameinsfélag íslands staðið í nánu sambandi við ýmsa erlenda aðila og hefur það haft ómetanlega þýðingu fyrir margvíslega starfsemi félagsins. Má þar fyrst nefna samvinnu við hin Norðurlöndin þar sem Krabbameinsfélag íslands er einn af 5 aðilum er mynda Nordisk Cancerunion. Nordisk Cancer- union, eða samband krabbameinsfélaganna á Norðurlöndum, heldur árlega fundi þar sem skipst er á skoðunum um málefni félaganna og eru fundirnir haldnir til skiptis í hverju landi. í júnímánuði í ár gekkst sambandið fyrir leik- mannaráðstefnu í Helsingfors þar sem tekin var fyrir fjáröflun til krabbameinsfélaganna, þýðing starfs áhugafólks í þessu sambandi og sérstaklega baráttan gegn tóbaksreykingum. Framkvæmdastjóri Krabbameinsfélags Reykja- víkur mætti sem fulltrúi íslands á þeirri ráð- stefnu og skýrði m.a. frá hinni nýju baráttuað- ferð gegn reykingum meðal barna og unglinga sem hann hefur hafið hér á landi. Yfirlitssýning sú, sem komið var upp í Domus Medica í tilefni afmælisins var unnin í samvinnu við krabbameinsfélögin á hinum Norður- löndunum og reyndar sett upp á sínum tíma á alþjóðaþingi krabbameinsfélaga í Flórens á Ítalíu. Árið 1952 gerðist Krabbameinsfélag íslands aðili að Alþjóðasamtökum krabbameinsfélaga. Sú aðild skapar m.a. möguleika á upplýsinga- söfnun um hina ýmsu þætti baráttunnar gegn krabbameini um víða veröld. Með ráðningu Hrafns Tuliníus til Krabba- meinsfélagsins hefur skapast möguleiki til ná- innar samvinnu við alþjóðakrabbameinsstöðina í Lyon, en Hrafn vann í fjölda ára við þá stofnun. 9

x

Heilbrigðismál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilbrigðismál
https://timarit.is/publication/638

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.