Heilbrigðismál - 01.10.1976, Blaðsíða 13
Félagið hefur hvað eftir annað veitt umtals-
verða styrki læknum sem hafa farið til erlendra
stofnana til að kynna sér nýjustu aðferðir við
greiningu, meðferð og lækningu illkynjaðra
æxla.
Krabbameinsskráning hefur aflað áreiðan-
legra upplýsinga um útbreiðslu og tegundir
sjúkdómsins hér á landi. Á þeim upplýsingum
hafa þegar verið byggðar fræðilegar ritgerðir um
utbreiðslu, tíðni og ýmsa hegðun illkynjaðra
æxla hérlendis en gera má ráð fyrir að rann-
sóknir byggðar á efnivið krabbameinsskrán-
tngarinnar færist mjög í vöxt á næstu árum.
Hafi félagið fjárhagslegt bolmagn til þess mun
það kappkosta að halda gangandi þeirri starf-
semi sem þegar er rekin á vegurn þess en
væntanlega snúa sér í ríkara mæli að því að
styðja faraldursfræðilegar rannsóknir og grund-
vallar rannsóknir á hegðun og eðli krabbameins.
Rétt er að minna á ráðstefnu þá sem Krabba-
meinsfélag Islands gekkst fyrir i tilefni af 25 ára
afmæli Krabbameinsfélagsins í Dornus Medica.
har fluttu framsöguerindi tveir ungir sérfræð-
ingar á sviði krabbameinslækninga, þeir Sig-
urður Björnsson og Þórarinn Sveinsson og
ræddu um framtíðarskipulag geisla- og lyfja-
meðferðar krabbameins hér á landi. f framhaldi
af framsöguerindum þeirra voru hringborðs-
umræður um efnið. Hér er um geysimikilvægt
mál að ræða sem nauðsyn ber að taka föstum
tökum. Slíkt verður varla gert nema með náinni
samvinnu lækna og heilbrigðisyfirvalda. Að
dómi stjórnar Krabbameinsfélags íslands er
þetta atriði kannski eitt það veigamesta sem fyrir
liggur að taka til meðferðar í sambandi við
baráttuna gegn krabbameini hér á landi í dag.
Nánar verður sagt frá ráðstefnunni í næsta hefti
Fréttabréfs um heilbrigðismál.
Á þessum tímamótum minnumst við sérstak-
lega brautryðjendanna, þeirra prófessors Níelsar
Dungal og Bjarna Bjarnasonar læknis, með
virðingu og þökk. En ég vil einnig að endingu
þakka hinum fjölmörgu bæði hér í Reykjavík og
úti um allt land sem frá upphafi hafa stuðlað að
framgangi þeirra mála sem Krabbameinsfélag
íslands berst fyrir.
Milli aðalfundnr ug hátiðafundar var samcif>inlcg kaffidrykkja ojt var þessi niynd þá tekin.
I.jósm.: Jens Alvxandersson.
orn heilbrigéismói
13