Heilbrigðismál - 01.10.1976, Side 26
Lokaorð.
Hér hefur verið drepið á helstu lækninga-
aðferðir gegn krabbameinum. Ekki hafa verið
ræddar allar aðferðir sem geta gefið tímabundna
bót, svo sem brottnám innkirtla og vakameðferð
(hormones). Hver aðferð um sig getur leitt til
fulls bata fyrir sjúklinginn. Stundum er unnt að
segja fyrir að svo verði en oftar getur enginn
skorið úr um það nema tíminn. Nauðsynlegt er
að gera biðina eftir þeim úrskurði sem áhyggju-
minnsta, hún er nógu erfið samt. Það næst best
með því að bæði sjúklingurinn og læknirinn séu
sannfærðir um að allt hafi verið gert sem unnt
var til að uppræta sjúkdóminn. Tækifærið til
þess gefst fyrst og fremst þegar sjúkdómurinn er
greindur í upphafi. Því er það að eins nákvæm
greining (tegund meins og útbreiðsla) og kostur
er á og samhæfð skipulagning meðferðar, þar
sem allar ofantaldar aðferðir eru íhugaðar, verða
að eiga sér stað í byrjun. Ef mjög miklar líkur eru
á algerum bata sé einni aðferð beitt eða ef aðrar
aðferðir eru taldar lítt hjálplegar, þá er fullkom-
lega réttlætanlegt að láta þar við sitja.
Á síðustu áratugum hafa framfarir í meðferð
krabbameina aukið batahorfur sumra og lengt
líf margra. Einna síðast er dæmið um hvítblæði í
börnum. Fyrir nokkrum árum var vitað mál að
enginn slíkur sjúklingur lifði árið. Þótt framfarir
hafi orðið í meðferð þessa sjúkdóms er margt
ógert, mest vegna þess að enginn veit hvað veld-
ur. Við skulum vona að ekki verði langt að bíða
þess að við getum fært foreldrum þessara barna
betri fréttir en þær að það séu helmings líkur á að
barnið verði hjá þeim eftir 5 ár.
BANKI ÞEIRRA SEM
FRAMTKHNNI
Hvernig veröa kjqr
/ afkomu? £>að
^ » Viö
næstu árin ? Megum vió vænta bættrar
að íslenskur iðnaöur eflist til muna.
hlutverki í þróun hans.
26
■fcéltabrét -unv fwilbrigóismól.