Heilbrigðismál - 01.12.1984, Síða 18
Verkefnin eru heillandi
og fólkid vingjarnlegt
Rætt við Geir Gunnlaugsson lækni sem hefur
starfað í rúm tvö ár í Guinea-Bissau
Hér á íslandi eru hlutfallslega
fleiri læknar en í flestum öörum
löndum. Við ættum því að vera af-
lögufær og geta aðstoðað þær þjóðir
sem eru skemmra á veg komnar í
heilbrigðisþjónustu. I>að heyrir þó
enn til undantekninga að íslenskir
læknar starfi í þróunarlöndum. Síð-
ustu tvö og hálft ár hafa Geir Gunn-
laugsson læknir og kona hans Jónína
Einarsdóttir, efnafræðingur og
kennari, unnið í Guinea-Bissau. Það
land var áður nefnt Portúgalska
Guinea og er í vestanverðri Afríku,
um 5700 km í hásuður frá austur-
hluta íslands. Landið varð sjálfstætt
lýðveldi árið 1974. íbúarnir eru um
830 þúsund, þar af um 100 þúsund í
höfuðborginni, Bissau. Að flatar-
máli er Guinea-Bissau um 36 þúsund
ferkílómetrar, eða samsvarandi
þriðjungi Islands. Rætt var við Geir
þegar hann var staddur hér á landi í
desember.
Hvernig bjóst þú þig undir lœknis-
starf í þessum heimshluta?
Að loknu læknisnámi 1978 og
tæplega þriggja ára starfi hér heima
fór ég til Uppsala í Svíþjóð. Par var
ég á tólf vikna námskeiði til undir-
búnings læknisstarfi í þróunar-
löndum. í framhaldi af því bauðst
mér staða í Guinea-Bissau á vegum
sænsku þróunarsamvinnustofnunar-
innar, SIDA. Þá tók við tveggja
vikna námskeið til kynningar á Afr-
íku og starfi þar. Síðan fórum við
Geir Gunnlaugsson læknir skoðar
bam í skugga „cashew“-trjánna.
Víða er það eina aðstaðan í
dreifbýlinu.
hjónin til Lissabon á fimm vikna
námskeið í portúgölsku, sem er hið
opinbera mál í Guinea-Bissau.
Hjálpaði þá fyrri kunnátta í
spænsku, annars tekur tungumála-
námið tíu vikur. Slíkt nám er grund-
vallaratriði ef gera á sér einhverjar
vonir um árangur í starfi. Frá Lissa-
bon lá leiðin síðan til Afríku.
/ hverju er starf þitt fólgið?
Ég starfa innan mæðra- og ung-
barnaeftirlitsins, mest við heilsu-
gæslu barna í hinum ýmsu hverfum
Bissau en einnig nokkuð úti á lands-
byggðinni. í Bissau eru sjö heilsu-
gæslustöðvar. Pær eru flestar í
gömluin íbúðarhúsum, rafmagn er
stopult, rennandi vatn er aðeins í
þremur stöðvanna og tækjabúnaður-
inn er fábrotinn. Á heilsugæslu-
stöðvunum eru hjúkrunarfræðingar
sem taka á móti sjúklingunum og
hefja meðferð.
I>að eru einkum konur og börn
sem sækja þjónustu til heilsugæslu-
stöðvanna. Venjulegast er um að
ræða kvilla eins og öndunarfærasýk-
ingar, niðurgang, húðsýkingar o. fl.
Malaría er landlægur sjúkdómur og
veldur mörgum dauðsföllum. Þá er
svæsin eyrnabólga algeng og
heyrnartjón í kjölfar hennar. Pví er
18 HEILBRJGÐISMÁL 4/1984