Heilbrigðismál - 01.07.2007, Page 6

Heilbrigðismál - 01.07.2007, Page 6
SEXTAN BLEIK GOLFMÓT (SUMAR Bleiki bikarinn til stuðnings krabbameinsrannsóknum Bleiki bikarinn er röð golfmóta fyrir konur sem haldin verður í sumar þriðja árið í röð, að þessu sinni á 16 golf- völlum. Þetta er fjáröflunarverkefni Krabbameinsfélagsins í samvinnu við Golfsamband íslands og nokkra styrktaraðila. Tilgangurinn með mótaröð þessari er fyrst og fremst að vekja fólk til umhugs- unar og þátttöku í forvarnarstarfi gegn brjóstakrabbameini. Vonast er til að Bleiki bikarinn stuðli að bættri þátttöku í leit- arstarfi Leitarstöðvar Krabbameinsfélags- ins og hvetji konur til að bera heilsu sína fyrir brjósti. Keppnisfyrirkomulag í sumar er Texas Scramble og munu vinningshafar í hverju móti fyrir sig vinna sér þátttökurétt í glæsi- legu lokamóti sem haldið verður 14. sept- ember í Borgarnesi. Allir þátttakendur fá fallega teiggjöf og afsláttarkort í valdar verslanir. Hver golfklúbbur um sig sér um skipulagningu en skráning er á golf.is Kaupþing er aðalstyrktaraðili Bleika bik- arsins, en aðrir sem leggja málefninu lið eru Estée Lauder, Hótel Glymur, Hótel Hamar, lcelandair Golfers, Pinnacle og Plusminus Optic. [ fyrra voru þátttakendur tæplega átta hundruð og er vonast til þess að þeir verði fleiri í ár. Svipmynd frá móti í sumar undir merkjum Bleika bikarsins. Bleiki^l bikarinn 9. júni: Golfklúbbur Þorlákshafnar 77. júni: Golfklúbbur Vestmannaeyja 22. júní: Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar - Sólstöðumót 24. júni: Golfklúbbur Bolungarvíkur 7. júlí: Golfklúbburinn Keilir 5. júlí: Golfklúbbur Suðurnesja 7 júlí: Golfklúbburinn Ásatúni 8. júlí: Golfklúbbur Hólmavikur 8. júli: Golfklúbbur Fljótsdalshéraðs 75. júli: Golfklúbbur Öndverðarness 21. jú II: Golfklúbbur Borgarness 7. ágúst: Golfklúbburinn Oddur 7 7. ágúst: Golfklúbburinn Kjölur 27. ágúst: Golfklúbbur Reykjavíkur 28. ágúst: Golfklúbbur Patreksfjarðar 9. september: Golfklúbbur Akureyrar 74. september: Golfklúbbur Borgarness - Lokamót HAUSTTÓNLEIKAR í ANNAÐ SINN Ákveðið hefur verið að efna til haust- tónleika Krabbameinsfélagsins í októ- ber 2007. Staður og stund verða kynnt þegar nær dregur. Fyrstu hausttónleikarnir voru haldnir í Langholtskirkju 26. október 2006, til styrktar rannsóknum á krabbameini í ungum konum. Tónleikarnir voru til minningar um Jóhönnu Arndísi Stef- ánsdóttur í tilefni af fertugasta afmælis- ári hennar, en Jóhanna lést úr krabba- meini fjórum árum áður. Það var Guðrlður Guðbjartsdóttir, móðir Jóhönnu, sem hafði frumkvæði að tónleikunum en Halli Reynis skipu- lagði þá. 6 HEILBRIGÐISMÁL 1/2007

x

Heilbrigðismál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heilbrigðismál
https://timarit.is/publication/638

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.