Samtíðin - 01.07.1943, Blaðsíða 7

Samtíðin - 01.07.1943, Blaðsíða 7
SAMTiÐIN Júlí 1943 Nr. 94 10. árg., 6. hefti ÚTGEFANDI: SIGURÐUR SIÍÚLASON MAGISTER. UM ÚTGÁFUNA SJÁ BLS. 32. SNEMMA á þessu ári kom út á forlagi Búnaðarfélags íslands lítil bók, sem að mínum dómi á skilið, að hún sé lesin af miklum þorra íslendinga, en þó fyrst og fremst af sveitafólki og öllum þeim, sem unna sveitum Iands vors og hafa samúð með þeim hluta þjóðarinnar, er þar heyir lífsbaráttu sína. Þessi bók lætur ekki mikið yfir sér. Hún svignar ekki af lærdómi, eins og rit hinna mestu lær- dómsmanna vorra, og hún á ekkert skylt við reyfara, sem seldir eru í fögrum um- búðum og við háu verði, en eru lítið ann- að en tímaþjófar. Hún er alveg einstök í sinni röð og svo undursamlega geðþekk aflestrar, að enginn vandi er að lesa hana hvíldarlaust frá upphafi til enda. Þessi bók er eftir merkan bónda, Hákon Finnsson í Borgum í Hornafirði, og nefnist S a g a smábýlis 192 0—1 9 4 0, en formála að henni hefur ritað Ragnar Ásgeirsson búnaðarráðunautur. Nokkrar myndir fylg-ja. í þessari litlu bók segir Hákon í Borg- um frá framkvæmdum sínum á jörð sinni um 20 ára skeið, og skiptir hann bókinni í þessa kafla: 1. Forsaga og tildrög, 2. Borgir 1920, 3. Ræktunin, 4. Vegagerð, 5. Byggingar, 6. Hugleiðingar, 7. Eftirmáli höfundar. Borgir eru lítil jörð, ekki nema 4,74 hndr. að eldra mati, en við þessa jörð hefur Hákon Finnsson tekið tryggð, sem er mjög til fyrirmyndar, og trú hans á mátt hinn- ar íslenzku moldar er í ætt við trú þeirra Eggerts Ólafssonar og síra Bjarnar Hall- dórssonar í Sauðlauksdal. Hann fer ung- ur utan og kynnist búskaparháttum í Dan- mörku, sækir sér þangað hugsjónir og við- horf, sem löngum hafa reynzt Islending- um drjúg, því að utanfarir hafa jafnan þótt vænlegar til þroska, einkum ef menn hafa borið gæfu til annars og betra en þess, að gleypa erlendis ýmsar öfgar, sem þeir hafa síðan selt hér upp ómeltum framan í landa sína. — Borgir hafa orð- ið Hákoni Finnssyni lítið konungsríki, og þann garð hefur honum tekizt furðu vel að gera frægan. í sögu jarðarinnar segir hann frá öllum sínum margvíslegu fram- kvæmdum á næsta mörgum sviðum. Á ein- um stað kemst hann þannig að orði: „Eitt mitt fyrsta verk var því að smíða mér nýja s v i p u — þá fyrstu bjó ég til um haustið 1912. — Þetta með svipuna er svo að skilja, að ég bjó til smákver, sem ég skrifaði í allt, sem gera þurfti á hverj- um tíma. Þessi smákver kalla ég verk- efnabækur. í þær skrifa ég allt, sem er ógjört, ekki síður smátt en stórt, svo að ekki lenti í undandrætti og vanhirðu, og merki við jafnóðum og lokið er. Síðustu „svipuna“ hef ég alltaf á skrifborðinu. Nú, 1939, eru þessar smábækur orðnar 23 í 2 knippum og verkefnin um 18000, þau eru þetta 6—800 á ári.“ Saga þessa smábýlis er sagan um trúna á land vort, þegar hún er sterk og menn bera gæfu til að sýna hana í verki. Ekki hugsa ég, að það væri allra að fara í föt bóndans í Borgum, en margt geta menn af honum lært, m. a. það, að heimta ekki allt af öðrum og hitt, að gera nokkru meiri kröfur til sjálfra sín en margir gera um þessar mundir. VEGNA rúmleysis í þessu hefti varð því ekki við komið að birta framhald af greinaflokkinum: Frá leiksvi ðinu hér. Næstu greinina í þeim flokki skrif- ar frú Þóra Borg Einarsson, og munu margar myndir fylgja. Greinar leikaranna hér í Samtíðinni hafa verið lesnar með mikilli ánægju af mörgum, og munu þær reynast allmerkar heimildir, er fram líða stundir. Munið, að næsta hefti Samtíðar- innar kemur 1. sept. Margar merkar grein- ar og snjallar sögur bíða næstu hefta.

x

Samtíðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.