Samtíðin - 01.07.1943, Blaðsíða 31
SAMTÍÐIN
27
skírn og velja þvi eitthvert nýtt heiti. Því
segja má, að Ijóð skiptist í tvo höfuð-
flokka, rímuð ljóð og órímuð ljóð. Orð-
henglar geta að vísu lengi deilt um nöfn
og min vegna mega þeir skemmta sér við
það, svo lengi sem þeir vilja, en ég hið
að hafa mig afsakaðan. Ekki fæ ég hekl-
ur skilið, að unnt sé að lesa það út úr
grein minni um hin frjálsu ljóð, að listin
eigi eða geti verið formlaus með öllu, og
eru slíkir útúrsnúningar í raun og veru
ekki svaraverðir. Annars skal það játað,
að hið víðáttumikla land hinna órímuðu
Ijóða er enn þá að miklu leyti ónumið,
að minnsta kosti með oss íslendingum
og væri full þörf á því, að taka þetta
efni til rækilegri meðferðar, annað hvort
í ræðu eða riti, en ennþá hefur verið gert,
og sérstaklega her nauðsyn til að lypta því
upp úr því feni persónulegra ádeilna, sem
sumir virðast vilja draga það niður i. Ég
hef hugsað mér að gera ])essu efni betri
og rækilegri skil siðar, annað hvort i
ræðu eða riti, og nenni þvi ekki að elta
ólar við allt það, sem mér virðist á mis-
skilningi byggt í greinum tvímenninganna,
en mun hugsa til þeirra siðar, auðvitað í
öllu bróðerni. Að lokum vil ég aðeins varpa
fram þessum spurningum: Hvar er rimið
í Ijóðum lækjanna, í söng fuglanna, i þyt
stormsins? Hvar er rímið i Ijóði þagnar-
innar, sem titrar yfir öræfum íslahds?
Og — að siðustu: Hvar er ljóðið í rími
Æra-Tobba og annarra slíkra manna, sem
virðast aðeins yrkja rímsins vegna? Hvar
er Ijóðið i rimi sumra flatrímaranna, sem
nú gefa út stökur sinar og stefjamál?
Umræðum um þetta efni er hér með
lokið hér í ritinu.
R i t s t j.
Hún: — Mér er ómögulegt að trúa
þessu um big, Guðmundur!
Hann: — Tráðu þvi þá bara um
einhvem annan, ---
Vinnuskilyrðin tryggja yður
^Fíjóía
og-
góða
víruiu,
Þau eru bezt í rafmagnsfaginu á
Vesturgötu 3
Bræðurnir Ormsson
Kemisk verksmiðja
„|UNO“
Framleiðir eftirtaldar
fyrsta flokks vörur:
Dekkhvítu
Zinkhvítu No. 1
Olíurifna málningu,
flesta liti,
Mattfarfa
í fiestum litum
Gólflakk
Gæði „JUNO“-framleiðslu eru
þegar búin að vinna hylli þeirra,
er notað hafa.
Söluumboð:
Gotfred Bernhöft & Co. h.f.
Sími 5912 — Kirkjuhvoli