Samtíðin - 01.07.1943, Qupperneq 13
SAMTlÐIN
9
Það er vitanlegt, að slíkt verk
verður ekki unnið af einum manni,
og að það þarfnast mikils og vandaðs
undirbúnings, enda mikið í liúfi, að
það takist vel og verði þegar i byrjun
undirstöðurit um landið. Yfirstjórn
þess yrði að fela ritstjórn, sem i væru
valdir liinir færustu menn í ýmsum
þeim greinum, sem hér er um að
ræða. Ekki mundi þó vert að liafa
ritstjórn þá of fjölmenna, heldur
vrði að fela henni að leita samvinnu
við alla þá rnenn, er eitthvað gætu
af mörkum lagt, og vitanlega yrði
að nokkru leyti að hafa sama ráðið
og Bókmenntafélagið liafði á sínum
tíma, þ. e. að láta menn rita héraða-
lýsingar, þar sem þeir væru kunnug-
astir. Því að einungis með aðstoð
kunnugra manna á hverjum stað er
tryggt, að héraðalýsingar fáist nokk-
urn veginn gallalausar. Rilnefndin
yrði hins vegar að hera áhyrgð á
verkinu og liafa alla stjórn þess á
hendi.
Eðlilegast væri, að einliver stofnun
tæki að sér útgáfuna, en ríkið styrkti
undirhúning hennar. Ekki lel ég
skipta miklu máli, liver stofnun það
væri, sem þetta tæki að sér, eða
hvort efnt yrði til nýrra samtaka i
þessu skyni, en vel færi á því, að
okkar aldna og virðulegaBókmennta-
félag hefði þar forystuna, enda væri
það í fullu samræmi við sögu þess
og störf á liðnum tíma. Nú er þegar
hafin útgáfa á sögu landsins og
menningarsögu þess sérstaklega, og
vönduð útgáfa fornritanna hefir
starfað um nokkur undanfarin ár.
Lýsing íslands með líkum iiætti og
hér er gerl ráð fyrir, ætti að vera
sjálfsagður þátlur í þeirri keðju þjóð-
legra ritsafna, sem hér um ræðir, og
ef til vill liefði hún látt að fara á
undan hinum tveimur.
Akureyri, 1. apríl 1943.
Athugasemd.
Nokkrum dögum eftir að þetta var
skrifað har Skúli Skúlason hlaða-
maður fram líka tillögu í útvarpser-
indi. Engu að síður læt ég þetta
greinarkorn frá mér fara, því að það
er einungis sönnun þess, að þetta
mál liggur í loftinu, livað sem úr
framkvæmdum verður.
St. St.
— Konan mín er ákaflega jafn-
lijnd.
— Jæja??
— Já, hún er alltaf úrill.
— Hann pabhi þekkir bæði greifa
og baróna.
— Ekki þgkir mér það mildð;
liann pabbi minn þekkir negra.
Rödd í símanum: — Eg ætlaði
bara að láta vita, að hann Jón Hró-
bjartsson væri veikur og gæti eklci
komið í skólann í dag.
Skólastjóri: — IIver er það, sem
talar?
Röddin: — Það er hann pabbi
minn.
Nú er bezt að halda licim,
herðir vind og sjóinn.
Fossberg hefur fenpið reim
fyrir dynamóinn.