Samtíðin - 01.07.1943, Síða 17

Samtíðin - 01.07.1943, Síða 17
SAMTtÐIN 13 Og öllum skilst, þá er vakinn voði, því vitinn er stríðs og ófriðar boði .... Og vitar lifnuðu’ um landið í kring, því lýðnum var stefnt út á vopnaþing. Menn flykktust á vígvöll og fylktu þar, og fremstur gekk sá, er merkið bar. Og fyllcing þéttist, unz fjendur runnu, þá fundu þeir, til hvers vitarnir brunnu. Og aldrei skal það með sanni sagt, að sigurmerkið sé niður lagt. Ef vitinn ekki brennur á brattri hæð, hann brennur í Norðmannsins hjartaogæð. Já, brenn þú viti með leiftrandi ljóma, já, lýstu bjartar og hærra til vegs og sóma.“ Þá um nóttina eftir, milli 8. oí* 9. apríl, liafði þetta gerzt í Noregi. Það var „barið á dyr“, harkalega og óvægilega, og voði vakinn, með þeim atburðum, sem margsinnis liefir lýst verið, og lengi mun minnzt verða. Til voru fáeinir fáráðir menn í Noregi, sem tóku að sér það starf flugumannsins Rindils, að draga lokur frá hurðum, og mun þeirra skömm lengi uppi vera, eins og allra, er svíkja ættland sitt í trvggð- um. En þó er varla vert að minn- ast þessa, því að mest er um vert allan þann drengskap, lireysti og bugprýði, scm þá kom í ljós, er land sk'yldi verja, og sýndi, að vit- arnir brunnu „i Norðmannsins bjarta og æð“, vitar, sem síðan liafa brunnið með æ skærari ljóma og lýsa nú æ „bjartar og hærra til vegs og sóma“. Viðburðir næstu vikna og mánaða, hin hetjulega vörn und- ir forustu þess manns, er merkið bar, liins ágæta konungs Norð- manna, og öll barátta Norðmanna og viðnám siðan heima og erlend- is, eru efni í nýjar, glæsilegar hetju- sögur, sem aldrei munu fyrnast, meðan dyggð og dáð er i heiðri höfð. Hinn 9. apríl 1940 kom það í ljós, að Norðmenn fundu, að þeir áttu ættjörð og ekkert var of gotl og dýrmætt til að leggja í sölurn- ar fyrir liana. Og enn betur liefir þetta komið í ljós síðan, í viðnámi þjóðarinnar heima og í baráttu sona hennar og dætra utan heimalands- ins. Fagurlega liefir það sannazt, er Per Sivle kvað, að „þótl vitinn ekki brenni á brattri hæð, hann brennur í Norðmannsins hjarta og æð,“ og mun lýsa þjóðinni aftUr inn i fyrirheitna landið, frjálsan Noreg. Y. Hefir oss Islendingum runnið svo blóðið til skvldunnar sem eðlilegt væri og vera ætti? Stephan G. Stepli- ansson kemst svo að orði í kvæði sínu „Avarp til Norðmanna“: „Við hörpu fslands hnýttur sérhver strengur fær hljóintitring, ef skrugga’ um Noreg gengur. Það snertir innar ættartali’ í sögum sem ómur væri af sjálfra okkar högum og ættum bæ og börn í Þrændalögum." Betur og spaklegar verður ekki lýsl þeim tilfinningum, sem allur þorri Islendinga mun bera í brjósti til norsku frændþjóðarinnar. Og víst er um það, að fréttirnar, sem borizt bafa hingað frá Norðmönn- um síðan 9. apríl 1940, hafa vakið „hljómtitring“ í hug og sál hvers heilbrigðs íslendings: Fréttirnar

x

Samtíðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.