Samtíðin - 01.07.1943, Síða 25
SAMTÍÐIN
21
Raddir lesenda vorra
EINN ER sá háttur íslenzkra
blaða, sem flestum lesendum
verður til ásteytingar, en það eru
sundurslit greinanna, með tilvísun á
framhald á einhverri annarri síðu,
sem þá eins oft er rangt vísað til.
Þessi „slítingur“ veður nærri alls
staðar uppi, og er þegar kominn inn
í timaritin, jafnvel svo, að í einu
þeirra verður að leita mörgum sinn-
um að framhaldinu, ef maður vill
lesa einhverja grein til enda. Þessi
sundurslit virðast eins ofl ástæðu-
laus með öllu, því að jafnvel smá-
klausur eru slitnar í sundur í þeim
eina sjáanlega tilgangi að koma fvr-
irsögn og upphafi annarrar greinar
að á sömu síðunni, oft álika langri og
af var klippt. Ég hygg, að flestum sé
svo farið, að þeim þyki þægilegast að
lesa fréttir og annað í óslitnu sam-
liengi, en þurfa ekki að leita að fram-
hajldinu (oft nokkrum linum) ein-
hvers staðar innan um annað lesmá)
og eins oft á allt annarri síðu en sagl
var til.
Þessi „slitingur“ mun vera er-
lendrar æltar og liafa ált upptök sin
í Ameríku, og þykir ]>ví sjálfsagt fint
að hafa tekið liann upp. — Þetta er
einn þáttur þeirrar eftiröpunarsýki,
sem við erum illa haldnir af og kem-
ur fram í ýmissi háttsemi okkar og í
margvíslegum myndum.
Um „slítinginn“ eiga ekki öll blöð-
in óskipt mál og af þeim, sem koma
út í Reykjavik beld ég, að Yísir sé
helzta undantekningin. Niðurröðun
efnis í blöð og tímarit er ekki vanda-
Bækur
Pappír
Ritföng
BÖKAVERZLUN
SIGFÚSAR EÝMUNDSSONAR
Fallegir og góðir skór
eru yður til yndis-
auka og ánægju, og þá
fáið þér hjá okkur.
iSköverzluifBStefám&onar