Samtíðin - 01.04.1944, Blaðsíða 8

Samtíðin - 01.04.1944, Blaðsíða 8
4 SAMTÍÐIN VIÐHORF DAGSINS XIII sjónarmiði ÞAÐ ER erf- itt að lýsa hugsunum og til- finningum ungs manns, sem ver- ið er að útskrifa úr menntaskóla, útskrifa sem stúdent. Hvíta húfan, sem hann lieldur á í hendinni, er ekki aðeins húfa, sem kostar 45 kr. lijá Anders- son klæðskera, heldur dásamleg kóróna. Rósin, sem hann liefur í lmappagatinu, er ekki aðeins litið, dauðlegt blóm, heldur sigurkrans. Heimurinn er fagur og yndislegur. Allir virðast ánægðir, öldungurinn, sem útskrifaðist fyrir 70 árum, istru- belgirnir, sem fengu sínar húfur fvrir 40, 30 eða 25 árum, foreldrarnir óvenju stoltir á svipinn, kennararnir inndælli en nokkru sinni og jafnvel gömlu rektorarnir og kóngarnir á veggjunum virðast vera í hátíðar- skapi. Nýi stúdentinn brosir, menn óska honum til hamingju, hann hrosir aft- ur og lagar rósina. Svo hefjast há- tíðahöld, sem vart eiga sinn lika, há- tíð gleðinnar, hátíð vegna þess að setlu marki er náð eftir sex ára strit. Sex ára strit, sex ára. Hugurinn reikar til haka. Hversu margt hafði hann ekki látið hjá líða að læra. Hversu oft liafði kennarinn ekki Frá Ben. S. Gröndal nýja stúdentsins eftir BENEDIKT S. GRÖNDAL stúdent orðið að skammast og rífast, og þó var þetta allt hans vegna. Mátti ekki kennaranum vera sama, hvort hann lærði þetta eða ekki? Jú, sannarlega, en hann stritaði þó við leti og fá- vizku í sex ár. Að vísu var hann ósanngjarn í þetta eða hitt skiptið. En var það ekki von? „Jæja, ertu ekki feginn að vera laus?“ segir einliver. Stúdentinn jánkar. Það er víst venjulega svo. En laus við livað? Við lexiur og þurr- an lærdóm. En líka við gamla skól- ann, bekkjarfélagana flesta, skóla- lífið og selið í Reykjakoti. Var hann feginn? Ef til vill. En livað félagslífið gæti verið miklu hetra og skemmtilegra, ef skólinn væri á fallegum stað uppi í sveit. Skóli, bókasafn, íþróttahús og leikvellir, stúdentagarðar og lcenn- arahústaðir. Þetta var eins og para- dís að hugsa um það. Friður og ró. Einbeiting við námið og mörgum sinnum meira félagshf. Og mundu nemendurnir ekki þroskast á því að bjarga sér svolítið sjálfir? Stúdentinn er rifinn upp úr hugs- unum sínum. „Gratulera, karlinn, til hamingju, til lukku.“ Hópurinn með hvítu húfurnar gengur um bæinn og syngur „Gaudeamus igitur, juvenes dum sumus“. Fóllc staldrar við og horfir á glaðlyndan hóp ungmenn- anna. Ungmenna. Flest um tvítugt, og

x

Samtíðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.