Samtíðin - 01.04.1944, Blaðsíða 35

Samtíðin - 01.04.1944, Blaðsíða 35
SAMTÍÐIN 31 ÞEIR VITRIJ - — SÖGÐU: Tímabundið og hverfult er verk bókmenntagagnrýnandans. Eftir skamma stund heyrir það til liðins tírna og er varla kunnugt öðrum en fróðleiksmönnum. En hið mikla lista- verk varðveitist og lifir. Ódysseifur stendur af sér öll siðaskipti. Hamlet prins lifir af allar byltingar. Á Don Quixote bítur ekki, þó að heimsveldi hrynji í rústir. Jafnvel lítið kvæði getur varðveitzt og lifað, þrátt fyrir breytingar tímanna, eins og kvæðið, sem Hóraz orti fyrir tveimur þúsund- um ára um úlfinn, sem flýði hann vopnlausan: „Vammlausum hal og vítalausum fleina / vant er ei, boglist þarf hann ei að reyna“ .... Og eins er víst, að Njálssaga lifir, meðan nokkur maður skilur íslenzka tungu. — Einar Ól. Sveinsson. Eldrauðir byltingamenn óttast að- eins eina byltingu, nefnilega þá, sem hlýtur að dynja yfir þá sjálfa og velta þeim úr valdasessi. Hins vegar skilst þeim sjaldan, að þeir sjálfir séu raunverulega ein af meslu plágum, sem vesalt mannkyn býr við. — X. Ekkert land stendur betur að vígi en Island í því að koma sér upp tíma- bornum (byggingar)stíl, er sé til fyrirmyndar. Hér eru fá hús yfir aldarfjórðungs-gömul, svo að ekki þarf nein hefð hér að vera til trafala, sem annars staðar grúfir yfir bygg- ingameisturunum með þúsund ára þunga. Varla nokkurs staðar í heiminum eru byggingameistarar jafnóbundnir af fortíðinni. — Hjör- varður Árnason. Nýjar bækur L. C. Douglas: The Robe. Skáldsaga. Bók þessi var fyrst prentuð í okt. 1942, en síðan hvað eftir annað, og er þetta 21. prentun i ágúst 1943. 556 bls. Verð kr. 27.50 íb. R. Llewellyn: None but the lonely Heart. Skáldsaga. 440 bls. Verð kr. 27.50 íb. Pearl S. Buck: The Promise. Skáldsaga. 248 bls. Verð 25 kr. íb. Daphne duMaurier: Hungry Hill. Skáld- saga. 402 bls. Verð 27.50 ib. Hervey Allen: The Forest and the Fort. Skáldsaga. 344 bls. Verð 25 kr. íb. Marcia Davenport: The Valley of Deci- sion. Skáldsaga. 790 bls. Verð 30 kr. íb. Philip Gibbs: Tlie Interpreter. Skáldsaga. 296 bls. Verð 25 kr. íb. Lín Yutang: Between Tears and Laugli- ter. Ádeila á stjórnmál Evrópu. 216 bls. Verð 25 kr. íb. Sholem Asch: The Apostle. Ævi Páls post- ula í skáldsöguformi. 804 bls. Verð 30 kr. íb. Thomas Craven: Modern Art. Saga nú- tima listar með 32 heilsíðumyndum af listaverkum. Um 400 bls. Verð 20 kr. ib. Gordon S. Seagrave: Burma Surgeon. Höf. segir frá læknisstarfi sínu i Aust- urlöndum fyrir stríð og meðan á stríð- inu stendur. Margar myndir eru í bók- inni. 295 bls. Verð 30 kr. ib. Höfum fengið fjölbreytt úrval bóka frá Ameríku, öllu þvi helzta, sem kom á bókamarkaðinn þar siðastl. ár, einnig mikið af eldri bókum hinna þekktustu skáldsagnahöfunda. Sent gegn póstkröfu hvert á land sem er. BÓKABÚÐ MÁLS OG MENNINGAR Laugavegi 19, Reykjavík. Sími 5055. Pósthólf 392.

x

Samtíðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.