Samtíðin - 01.04.1944, Blaðsíða 18

Samtíðin - 01.04.1944, Blaðsíða 18
14 SAMTlÐIN hennar, hvað sem hún sagði, og fór auk þess að skyggnast eftir, hvort ég ælti ekki eitthvað fleira, sem gæti orðið henni að einhverju gagni. Eg sá ekkert nema eitt glas með Kölnar- vatni, sem ég gat ekki notað, af því að lvktin af því var allt of sterk. Ég gaf henni því glasið og auk þess myndablað og þrjá vasaklúta. Mynda- blaðinu sá ég mest eftir, af því að ég var ekki nema liálfnaður að ráða krossgátuna í því. Þá fór stúlkan að gráta. Það gat ég ekki horft upp á, svo að ég lét Iiana fara. Síðan gerði ég hoð fyrir dyravörðinn í gistihúsinu og J)að hann að sjá til þess, að ég yrði ekki framvegis ónáðaður af slíkum lieim- sóknum. En samt sem áður lók mig sárt til þessarar dökkeygu stúlku. Eg þóttist vita, að hún væri alls ekki úr hópi betlaranna, sem ég hef mesta ímugust á. EN ÞESSARI sögu er enn ekki lokið. 1 gærmorgun var mér færður hingað upp í herhergið snotur böggull. Um hann var hundinn gyllt- ur þráður, og á böggulinn voru festar nokkrar liljur. I lionum voru þær beztu hóstapillur, sem hægt er að fá, og 6 spegilfagrir krónupeningar, en auk þess var þarna stutt bréf til mín. Böggullinn var frá litlu, dökkhærðu stúlkunni. Hún hafði sjálf afhenl hann dyraverðinum í gistihúsinu. 1 hréfinu skýrði hún mér frá því, að nú hefði hamingjan loks verið sér hliðholl. Daginn eftir að hún hafði heimsótt mig, kvaðst hún hafa fengið atvinnu í matsöluliúsi. Hún sagði, að þetta væri prýðilegur staður og kvaðst hafa von um framtíðaratvinnu þar. Henni hafði tekizt að draga saman af kaupi sínu þessar sex krónur, semliún skuldaði mér. Peningana hafði liún geymt í heila viku. Sagðist hún hafa ætlað að færa mér þá sjálf og kvaðst hafa gert þrjár tilraunir til þess, en dyravörður gistihússins hafði ekki viljað hleypa lienni inn. Hvað liósta- pillunum viðvék, kvaðst hún vera viss um, að þær mundu lina hóstann í mér. Á bréfinu var hvorki nafn né lieim- ilisfang. Þessi litla, heiðarlega stúlka ætlaðist sýnilega ekki til neins þakk- lælis fyrir lióstapillurnar sínar. Hve mikið hún hefur orðið að neita sér um vegna þessarar hugulsemi, veit ég ekki. Ég reyndi að afsaka sjálfan mig. Sumt fólk er nískt á peninga. Ég átti enga peninga. Þess vegna reyndi ég að forðast átroðning. En þegar ég hugsaði um það, livernig ég hafði lát- ið þennan stúlkuvesaling frá mér fara, rann mér til rifja. Hvernig skvldi henni hafa verið innan brjósts, þegar liún var að læðast niður þessa teppalögðu stiga, alla leið ofan af 3. hæð? Aumingja slráið, skyldi hún hafa þorað að opna munninn? Ætli henni hafi ekki verið þungt í skapi, þegar glerhurð gistihússins hverfðist á hæla henni ...... líldega ámóta þungt og mér var þessa stundina. Góðir skór þurfa gott viðhald. — Landsins beztu skóviðgerðir hjá okk- ur. — S æ k j u m. S e n d u m. SIGMAR&SVERRIk Grundarstíg 5. — Sími 5458.

x

Samtíðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.