Samtíðin - 01.04.1944, Page 32

Samtíðin - 01.04.1944, Page 32
28 SAMTÍÐIN Flateyjarbók ARIÐ 1662 flutti sagnaritarinn Þormóður Torfason Friðriki konungi III. dýrmæta gjöf frá Brynj- ólfi Sveinssyni, biskupi i Skálholti. Það var skinnbók ein mikil, er áður hafði verið í eigu Jóns Finnssonar, bónda í Flatey á Breiðafirði, og hef- ur hún því hlotið nafnið Flateyjarbók. —- Sjálfsagt hefur sendandann ekki órað fyrir því, að þessi bók yrði scinna ekki föl fyrir miljónir króna og að slóreflis herskipi yrði eigi trúað fyrir henni yfir Atlantsliafið. Nú er hún vandlega geymd í Danmörku, og útgáfan frá 1860—68 er aðeins i fárra manna höndum. Sama máli gegnir um hina ljósprentuðu útgáfu frá 1930. Það er sannarlega vel til fundið, að liafizt hefur verið handa um útgáfu á þessari stórmerku bók á þessu milda merkisári í sögu íslands, og ber shkt volt um hinn andlega stórhug, sem enn býr með söguþjóðinni. Hinn á- gæti bókmenntafræðingur vor, próf. Sigurður Nordal, mun rita formála að öllum fjórum bindum liinnar væntanlegu útgáfu, og er elcki öðrum treystandi til að gera það samvizku- samlegar né betur. — Flateyjarbók er skrifuð um 1390. í henni eru varð- veittar Nöregskonungasögur, Orkn- eyinga-, Færeyinga-, og Jómsvíkinga- saga, annáll frá upphafi heims til 1394, ýmsir merkir þættir og kvæði. Allmargt af þessu er hvergi annars staðar varðveitt. Útgáfu þessari ber að fagna sem merkisviðburði í ísl. út- gáfustarfsemi.

x

Samtíðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.