Samtíðin - 01.11.1944, Qupperneq 10
6
SAMTÍÐIN
er góðiu' „sonur“, bæði foreldrum
sínum og ættjörð sinni. Hann „leik-
ur“, þó ekki við freistingar heims-
ins. „Hreystimenni“ er hann, skap-
gerðarmaður. „Bardagamaður“, það
er hann einnig, og barátta lians er
einlæg, hörð og hlifðarlaus. „Vel
máli farinn“, það á við hann, því að
mál hans er hreinsað, heilag't, orð
hans sönn og' loforð hans traust.
„Vaxinn er hann vel“, snyrtilegur
og laus við prjál tízkunnar og lié-
gómalaus. „Drottinn er með.hon-
um“; hann truir á Jesúm Krisl sem
Guð sinn og frelsara samkvæmt
Bibliunni.
Hefurðu komið auga á hann?
Hann er ekki það viðhorf dagsins,
sem algengasl er. Undantekning er
hann, einn af fáum.
Vér komumst því ekki hjá því
að sjá önnur og ólik viðhorf dags-
ins, æskumenn, sem Drottinn er
ekki með. Ég á ekki við þá eina, sem
gengið hafa siðleysinu á vald, og
ekki heldur þá eina, sem vilja eng-
an Guð. Geturðu komið auga á ungl-
ing, sem er ástríkur sonur, þjóðlioll-
ur, vinsæll, staðfastur, siðprúður,
orðvandur og; hvers manns hugljúfi,
þar að auki guðrækinn og kirkju-
rækinn, trúir þvi, að Jesús Kristur sé
Guð og frelsari, en á þó ekki sam-
félag við hann. Liklega er nokkur
leit á honum, því að afneitun og
guðleysi eru orðin almenn.
Hvernig lit ég á þennan ungling
frá sjónarmiði K.F.U.M.? Hann þarf
að frelsast. Frá hverju? Hefur hann
ekki alla góða kosti? Frá hverju á
hann að frelsast? Frá synd. Hún er
það, sem veldur þvi, að hann á ekki
samfélag við Guð. Hvar er sú synd?
í hugarfarinu. Já, en hvar er svo
hreint hugarfar, að það hindri ekki
samfélag við Guð, ef í það er far-
ið? Hvergi, en lilóð Jesú, sonar Guðs,
hreinsar af allri synd. Það frelsai'.
Svona lítur viðhorf dagsins út,
þegar horft er á það frá sjónarmiði
K.F.U.M. Er það sjónarmið rétt?
Því get ég svarað játandi, en of langt
ju-ði að ræða það hér. Það er annað
atriði, sem ég vil minnast á. Vér lit-
um óhýru auga frá sjónarmiði K.F.
U.M. allt það, sem spillir siðgæði
ungra manna og hægir þeim frá
Kristi.
Öll vanhelgun á nafni Guðs í ræðu
og riti er oss andstyggð i augum.
Allur áróður gegn siðgæðishugsjón-
um kristinnar trúar og allt „nýtl
siðferði“, sem boðað er æskunni, er
ólyfjan, sem vér hljótum að vara
við, og hver sá, sem býður hana, er
ódrengur, virkilega, ekki aðeins frá
sjónarmiði, sem er ekki viðnrkennl
af öllum.
Þann 6. júní í sumar varð K.F.
U.M. hundrað ára. Stofnandi þess
var ungur, trúaður verzlunarmaður,
George Williams. IJann hafði starf-
að áður meðal félaga sinna með fyr-
irbæn og vitnishurði um Jesúm
Krist. Þelta tvennt, bænin og orðið
um Jesúm Krist, hafa verið máttar-
lindir félagsins siðan. Trúin á Jes-
úm Krist sem Guð og frelsara er
grundv’allaratriðið. Markið er, að
hver félagsmaður sé lærisveinn Jesú
Ivrists i trú og líferni. Verkefnið er
útbreiðsla rikis hans meðal ungra
manna. Þessi atriði er öll að finna
í grundvallarreglu félaganna. er