Samtíðin - 01.03.1948, Qupperneq 8
4
SAMTÍÐIN
landssvikarar í þjónustu Þjóðverja voru
valdir að morði Kaj Munks, sams konar
menn og líflátnir voru í maí s.l., eins og
áður er getið.
Dönum telst til, að þeir hafi tapað 12
milljörðum á hernámi Þjóðverja. Því tjóni
eiga þeir örðugt með að gleyma. En þeir
hafa líka lært mikið á árunum 1940—45.
Meðal annars hafa þeir komizt að raun
um, hvílík hætta sérhverri þjóð stafar af
föðurlandssvikurum sínum, þessari undar-
legu manntegund, sem ávallt virðist reiðu-
búin til að fremja hvers kyns glæpi á
samborgurum sínum og baka þjóð sinni í
heild hvert það tjón, er vera skal, í blindri
auðsveipni við erlenda valdhafa, einungis
ef fé eða völd eru í boði. Þessa mann-
tegund notuðu Þjóðverjar í Danmörku og
Noregi til að fremja ýmis þau óhappa-
verk, er þeir töldu sjálfum sér ósæmandi
að koma nálægt. Danir og Norðmenn hafa
með dýrkeypfri reynslu öðlazt næsta nyt-
samlega þekkingu á þessum vanmetakind-
um þjóðfélagsins.
„Ég get ekki étiö þetta andsk....
buff yðar?“
„Takk, en hvers æslcir herraiín?“
„Einhvers, sem er meirt, t. d.
leðurpjötlu.“
ÍJAMTÍÐIN er tímarit íslenzkra menn-
W ingarheimila; hún flytur einungis úr-
valsefni, íslenzkt og útlent. Gerizt áskrif-
andi strax í dag, ef þér eruð það ekki
áður. Munið: 320 bls. fyrir aðeins 20 kr.
á ári. Þetta eru -beztu bókakaupin.
Sigurgeir
Sigurjónsson
hæstaréttarmálaflutningsmaður.
Aðalstræti 8. — Sími 1043.
Skrifstofutími 10—12 og 1—6.
Kolbjörn í Smæruhlíð:
fíííl í wnyrkri
Ég Jigg- á hnjánum og hlusta
og lieyi við sjálfan mig stríð.
Svo strýk ég spýtu um stokkinn
og stari’ inn í liðna tíð.
Brátt læsa sig rauðir logar
um lítið vísnakver,
bein af mínum beinum
og blóð úr holdi mér.
Vísurnar, sem þar voru,
voru mitt einkamál,
ýmist um ástir í meinum
ellegar svik og tál.
Nú brennur þetta allt til ösku,
en innst við hjartað ég finn
svo sem ég sé að missa
síðasta vininn minn.
Vitið þér þetta ?
Svörin finnið þér á bls. 29.
1. 1 hvaða átt stefna jökulrispur
(frá isöld) á Skólavörðuhæðinni
í Reykjavík?
2. 1 hvaða löndum eiga Ijónin
heima?
3. Hve þung er jörðin?
4. Munið þér eftir sjö heimsfrægum
rithöfundum, sem allir voru
hnepptir í fangelsi?
5. Hvorl er þyngra mjólk'eða vatn?
Afgreiðslan er eftir röð
eins og hespa og kengur,
svo að næsta símastöð
er sjaldan opin lengur.