Samtíðin - 01.03.1948, Page 11
SAMTÍÐIN
7
þEGAR skoðuð er vélaverksmiðja,
er rétt að staldra fyrst við í efn-
isafgreiðslunum. Þaðan er afgreitt
efni til allra deilda verksmiðjunnar:
plötur, öxlar og járnstengur af öll-
um gerðum. Allt heyrir jietta undir
óunnin efni til vélaiðnaðarins. Síð-
an hefst smíði ýmissa vélahluta. Sér-
hverjum hlut má fylgja frá upphafi
smíðinnar. Annað hvort kemur hann
stéyptur, pressaður úr stáli, skorinn
úr plötu eða sagaður af stöng. Fell-
ur þá óunninn járnbútur í kassa.
Algengt er, að einn maður gæli 3—4
vélsaga og her honum að gæta þess,
að þær hafi ávallt nóg að saga. Kass-
arnir fyllast nú óðum af járnbútum,
sem eiga að fara i ýmsa vélahluta.
Síðan eru þessir kassar færðir að
fyrstu vélinni, sem á að vinna járn-
hútinn. Þar tekur við honum hand-
fljótur vélsmiður, sem setur hlutinu
í vél sina og gerir oft ekki annað en
t. d. að bora á hann eitt gat eða
slétta einn flöt á honum. Þannig út-
lítandi fer hluturinn til næsta manns,
sem breytir honum örlítið í rétta
átl í sinni vél. Þannig gengur hann
frá einum til annars — oft milli tuga
af mönnum þar sem vélinni og
þeim, er stjórnar henni, er ætlað ör-
lítið verk af smíði hlutarins. Með
þessu móti næst hinn stórkostlegi
framleiðslumáttur með mörgum og
smáum handtökum í vélum, sem eru
eins vel til verksins fallnar og hugs-
azt getur. Þannig er þróunarsaga
hvers einasta vélarhluta, sem fram-
leiddur er með nútíma tækni. Við
samsetninguna fellur síðan allt hvað
við annað og myndar að lokum heila
vél. Áður en samsetning vélanna
hefst, verður hver einasti hlutur að
standast sína prófraun, því að hann
er mældur á alla vegu með hárfín-
um mælitækjum, sem eiga að tryggja,
að sérhver hlutur af sömu gerð falli
í hvaða vél, sem er, sömu tegundar,
hvar sem hún fyrirfinnst á hnettin-
um. Vélarhlutamir eru einnig vegn-
ir með nákvæmum vogartækjum,
því að í hinum fínni vélum verða
allir hlutir, sem hafa hraða, að vera
jafn þungir, til þess að þeir séu
ekki í misræmi hver við annan, er
vélarnar eiga að þreyta sína hörðu
samkeppni á heimsmarkaðinum. Vél-
arhlutarriir eru þrýstireyndir, gengið
er úr skugga um styrkleik þeirra,
þensluþol o. s. frv. Að því loknu er
farið með þá í deild þá, þar sem
vélarnar eru settar saman.
Það er lærdómsríkt að sjá, hvern-
ig samsetning hinna smærri véla fer
fram á færibandi, sem líður hægt
framhjá starfsfólkinu. Með þaulæfð-
um handtökum er hver hlutur setl-
ur á sinn stað: skrúfa, hjól o. s. frv.
Hver starfsmaður hefur sinn hnit-
miðaða tíma til að leysa af hendi
sinn litla skerf við samsetning vél-
arinnar. En kornið fyllir mælinn.
Ótrúlega fljótt er vélin komin á
enda færibandsins og er nú með öllu
samsett. En þar með er ekki öllu
lokið. Nú er vélin sett á band, sem
húið er tækjum til þess að snúa lienni
eins og henni er ætlað að ganga,
þegar hún er fullgerð, Þar með hefst
„reynslukeyrslan“, sem oft tekur
nokkrar klukkustundir eða jafnvel
nokkra daga.
Þarna voru smíðaðar frystivélar.
Þær voru fylltar kæliefni og síðan