Fréttablaðið - 24.12.2009, Page 2

Fréttablaðið - 24.12.2009, Page 2
2 24. desember 2009 FIMMTUDAGUR VEÐRIÐ Líklega verður hörkukuldi milli jóla og nýárs á öllu landinu og mikið frost í innsveitum. Að mati Páls Bergþórssonar, fyrrverandi veðurstofu- stjóra, mun norðaustanáttin ríkja enn um sinn næstu daga og éljagangur líklegur fyrir norðan. Þurrt verði að mestu um Suður- og Vesturland. Veðurstofa Íslands býst við stormi á Vestfjörðum í dag og niður í fimm stiga frost þar. Sex stiga frost verði á hádegi á Egilsstöðum, en hlýjast í Vestmanna- eyjum, þar sem verði einnar gráðu hiti. Í höfuðstaðnum verður hiti um og undir frostmarki í dag en þriggja gráðu kuldi á jóladag. En svo kólni og má búast við allt að tíu stiga frosti að meðaltali á sólarhring. Páll segir að um áramótin verði veðrið trúlega mild- ast á suðvesturhorninu. „Þótt tölvurnar séu háar er of langt í það til að maður reiði sig mikið á þær,“ segir hann og treystir sér því ekki til að útlista nánar hugsanleg hlýindi. - kóþ Páll Bergþórsson telur að ekki fari að hlýna fyrr en um áramótin: Hörkukuldi milli jóla og nýárs PÁLL BERGÞÓRSSON Á LEIÐ TIL BYGGÐA Þegar síðasti jólasveinninn verður kom- inn til byggða fer að kólna og verður kalt allt til áramóta. FRÉTTABLAÐIÐ/SÓLVEIG JAMAÍKA, AP Fjórir farþegar eru alvarlega slasaðir og 40 til við- bótar sárir eftir að þota frá flug- félaginu American Airlines með 154 innanborðs fór út af flug- brautinni við lendingu á flug- vellinum í Kingston á Jamaíku í gær. Úrhellisrigning var þegar þotan lenti og náði hún ekki að stöðvast á flugbrautinni. Hún stöðvaðist að lokum innan við fimm metra frá sjávarmálinu. Mikið högg kom á vélina þegar hún fór út af flugbraut- inni. Báðir hreyflar þotunnar losnuðu af vængjunum og lend- ingarbúnaður fór undan vélinni. Áhöfnin kom farþegunum frá borði. - bj Þota fór út af flugbrautinni: Stöðvaðist í sjávarmálinu FLUGSLYS Rannsakað verður hvort rétt hefði verið að snúa þotunni annað vegna veðurs, en aðrar þotur náðu að lenda skömmu fyrir slysið. FRÉTTABLAÐIÐ/AP HESTAMENNSKA „Folöldin eru komin og unnu hjörtu Mexíkóanna um leið og þau birtust.“ Þetta stendur í tölvupósti sem hin þýska hestakona, Regína Hof, skrifaði Huldu Gústafsdótt- ur á Árbakka í Rangárvallasýslu, útflytjanda sjö folalda, sem flutt voru frá Íslandi til Mexíkó. Eins og Fréttablaðið greindi frá leitaði Regína til Huldu eftir aðstoð við að finna út úr því hvernig hægt væri að flytja hross frá Íslandi til Mexíkó. Þegar komin var áætlun um flutninginn keypti Regína folöldin sjö. Þau munu vera fyrstu íslensku hest- arnir sem fluttir eru milli þessara landa eftir því sem best er vitað. Hulda segir að afskaplega vel hafi farið um folöldin á þeirri löngu leið sem þau lögðu að baki, fyrst með flugi til New York og síðan með bíl gegnum Bandarík- in. „Hingað komu þau, svolít- ið skítug en afskaplega ánægð,“ skrifar Regína enn fremur til Huldu. „Svo var eins og máttar- völdin hefðu ákveðið að hafa hönd í bagga með að taka á móti þeim, því daginn sem þau komu var fremur kalt í veðri miðað við það sem gerist hér, ekki nema sextán gráður yfir hádaginn og rigning, sem er ekki venjulegt hér á þess- um árstíma. Þeim leið því mjög vel við komuna.“ Folöldin lögðu af stað í ferðina miklu 25. nóvember. Þau komu á leiðarenda 17. desember. Hulda segir að þess hafi verið vel gætt að þeim liði vel á ferðalaginu; gott fóður, vatn og mikill og góður undirburður í bílnum. „Þau voru þrjár vikur á leiðinni, þar af sex- tán daga í hvíld. Þá var stoppað á búgörðum, þar sem þau fengu að teygja úr sér og leika sér í gerðum eða á túnum. Það var allt gert til þess að þau hefðu það sem best. Ég er rosa ánægð með hvað þetta gekk vel og spennt að sjá hvort eitthvert framhald verður á þessu,“ bætir Hulda við. „Í fyrstu hugsaði Regína sér þessi folaldakaup einungis fyrir sig, en nú stefnir í að þetta gæti undið upp á sig vegna áhuga Mex- íkóanna, sem vilji nú ólmir kynn- ast íslenska hestinum, prófa hann og kaupa.“ jss@frettabladid.is VELKOMIN Folöldin hafa þegar vakið mikla athygli eftir að þau komu út til Mexíkó, enda litskrúðug og falleg. Þeim var vel fagnað við komuna eins og má sjá. Folöldin hafa unnið hjörtu heimamanna Folöldin sjö sem lögðu af stað héðan til Mexíkó 25. nóvember eru nú komin til nýrra heimkynna. Ferðalagið gekk vel, enda allt gert til að sem best færi um þau. Þau fengu sextán hvíldardaga á leiðinni. Mexíkóar eru stórhrifnir af þeim. STOKKHÓLMUR, AP Forsvarsmenn Ford-bílaverksmiðjanna sögðu í gær samninga við kínversku bíla- framleiðendurna Geely Group um sölu á Volvo-verksmiðjunum langt komna. Líklegt er talið að samningar takist á nýju ári. Ford eignaðist Volvo-verk- smiðjurnar árið 1999, en eins og aðrir bílaframleiðendur, sér- staklega í Bandaríkjunum, hefur Ford átt í miklum fjárhagsvanda undanfarið. Sérfræðingar telja víst að Volvo-bílarnir verði áfram hann- aðir og framleiddir í Svíþjóð þrátt fyrir breytt eignarhald, enda hluti af vörumerkinu. - bj Ford selur Volvo-verksmiðjur: Kínverskt fyrir- tæki áhugasamt SÆNSK GÆÐI Búist er við áframhaldandi samstarfi Ford og Volvo þótt Ford-verk- smiðjurnar selji hlut sinn í Volvo. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR SELFOSS Skammhlaup myndað- ist þegar gröfubílstjóri á Selfossi ók of nálægt háspennulínu með þeim afleiðingum að rafmagn sló út í bæjarfélaginu. 66 þúsund volta spenna hljóp í gegnum gröf- una með tilheyrandi neistaflugi en bílstjórann sakaði ekki sem þykir mikil mildi. Rafmagnsleysið olli töluverðu tjóni hjá Mjólkursamsölunni á Selfossi. Að sögn Guðmundar Geirs Gunnarssonar forstjóra þurfti að hella niður sex þúsund lítrum af mjólk, þrífa tækin og hefja vinnslu dagsins á ný. Seink- unin þýddi einnig fjögurra tíma lengingu á vinnudegi hjá um tíu manns en að sögn Guðmundar Geirs tóku menn því með jafn- aðargeði enda ýmsu vanir. Fjár- hagslegt tjón af rafmagnsleysinu hjá MS nemur um 650 til 750 þús- und krónum. - sbt Skammhlaup olli mjólkurtjóni: Sex þúsund lítrar í súginn SIGLINGAR Útlit er fyrir að öll íslensk skip verði í landi yfir hátíðirnar, samkvæmt upplýs- ingum frá vaktstöð siglinga. Fjögur íslensk skip sáust á sigl- ingu innan íslensku lögsögunn- ar klukkan sjö í gærmorgun og stefndu þá öll til hafnar. Þær upplýsingar fengust hjá vaktstöðinni að undanfarin ár hefðu alltaf einhver skip verið úti um jólin. Ekki lá þó fyrir hvenær það hefði síðast gerst, ef einhvern tímann, að ekkert íslenskt skip væri á miðunum um jólin. - sh Enginn á miðunum: Öll íslensk skip í landi um jólin FÓLK Níu börn komu í heiminn á fimm tímum á Landspítalanum í gærmorgun sem er vel yfir með- altali. Eins og venja er voru sex ljósmæður á vakt, fjórar á fæðing- argangi og tvær í Hreiðrinu Allar fæðingarnar gengu vel, að sögn Guðrúnar Eggertsdóttur, yfirljós- móður á fæðingargangi, sem munar miklu þegar mikið er að gera. Þegar Fréttablaðið hafði samband um tvöleytið í gær voru ellefu börn fædd frá því að Þorláksmessa hófst á miðnætti og voru fjórar fæðingar í gangi. Það stefndi því í fjölda fæð- inga umfram meðaltal sem eru um tíu fæðingar á sólarhring. „Þetta er fjörugur og góður dagur,“ segir Guðrún sem var létt í skapi þegar haft var samband. Guðrún segir ómögulegt að spá fyrir um hvernig hátíðardagarnir verði á fæðingar- deildinni, oft sé rólegt á aðfanga- dag og jóladag en þó ekki alltaf. Alls hafa fæðst 3.435 börn á árinu á Landspítalanum og Guðrún segist eiga von á 87 fæðingum miðað við áætlanir en reynslan sýni að þær séu gjarnan fleiri. Miðað við það munu yfir 3.500 börn koma í heim- inn á Landspítalanum í ár sem er met en 3.479 fæddust þar í fyrra. Á Akranesi var eitt Þorláks- messubarn komið í heiminn þegar Fréttablaðið hafði samband og sömuleiðis á Akureyri. Bæði Soffía Þórðardóttir, ljósmóðir á Akranesi, og Ingibjörg Jónsdóttir á Akureyri eiga von á fleiri börnum fyrir ára- mót en sögðu illmögulegt að spá til um komudaginn, þau kæmu bara þegar þau kæmu. - sbt Mörg börn flýttu sér í heiminn á Þorláksmessu: Fjörugur og góður dagur SAKAMÁL Það skýrist fyrstu mán- uði næsta árs hver niðurstaða verður í fyrstu málunum af þeim um fimmtíu sem sérstak- ur saksóknari hefur til rann- sóknar. Þetta kom fram í sam- tali Ólafs Þórs Haukssonar, sérstaks sak- sóknara, við Fréttablaðið í gær. Hann segir farið að sjá fyrir endann á rannsóknum fyrstu málanna. Ólafur Þór vildi ekki tjá sig um líkur á því að ákært verði. Hann segir slíkar vangaveltur, á þessu stigi, geta gert sig vanhæf- an til að taka ákvörðun um hvort ákæra eigi eða fella niður mál þegar rannsókn lýkur. - pg Sérstakur saksóknari: Ákvörðun um ákærur á fyrstu mánuðum 2010 ÓLAFUR ÞÓR HAUKSSON SJÁVARÚTVEGUR Aflaverðmæti íslenskra skipa nam rúmum 85 milljörðum fyrstu níu mánuði ársins. Það er 21 prósenti meira en á sama tímabili í fyrra, þegar það nam 70 milljörðum króna. Aflaverðmæti botnfisks var í lok september orðið 59 milljarð- ar, hafði aukist um 19,1 prósent miðað við sama tímabil í fyrra. Verðmæti þorskafla var 26,5 milljarðar og jókst um 12,5 pró- sent frá fyrra ári. Verðmæti ýsu stóð í stað á milli ára, nam um 12 milljörðum króna. Verðmæti flat- fiskafla nam tæpum 8 milljörð- um króna sem er 75,2 prósenta aukning frá í fyrra. - kóp Sjávarafli eykst: 85 milljarðar á níu mánuðum Kertasníkir, gefurðu mömmu gömlu einhvern tíma í skóinn? „Stundum, en þá fær hún reyndar bara grýlukerti.“ Kertasníkir kom til byggða í nótt, síðast- ur jólasveinanna, leitaði uppi tólgarkerti og gaf smáræði í skóinn. Á leið sinni fann hann nokkur grýlukerti sem hann gefur kannski Grýlu móður sinni þegar hann kemur heim aftur. KVENNADEILDIN Mikið fjör var á fæðing- ardeild Landspítalans í gærdag. TUGGA OG VATNSSOPI Ekki var verra að fá heytuggu og vatnssopa við komuna. SPURNING DAGSINS Ekki efni á landgræðslu Bæjarstjórn Ölfuss segir sér ekki fært að verða við ósk Landgræðsl- unnar um fjárstyrki til tveggja uppgræðsluverkefna innan sveit- arfélagsins. Var þar um að ræða eina milljón króna til uppgræðslu á Kambinum austan Þorlákshafnar og tvær milljónir til uppgræðslu í beitarhólfinu á Mosfellsheiði milli Lyklafells og Hengils. ÖLFUS

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.