Fréttablaðið - 24.12.2009, Síða 6
6 24. desember 2009 FIMMTUDAGUR
Áslaug fer í framboð
Áslaug María Friðriksdóttir gefur kost
á sér í fjórða sæti á lista Sjálfstæðis-
flokksins við borgarstjórnarkosning-
arnar í vor. Áslaug er formaður Hvatar
og varaborgarfulltrúi.
STJÓRNMÁL
Mæðrastyrksnefndir styrktar
Sjálfstæðiskonur söfnuðu um 2,9
milljónum króna til styrktar mæðra-
styrksnefndum landsins. Ætla má að
á milli fimm og sex þúsund manns
hafi styrkt átakið.
LÍKNARMÁL
Rafmagnsverð hækkar
Hækka á dreifigjaldskrá Rafveitu
Reyðarfjarðar um 6 prósent. Er það
gert vegna almennrar verðlagsþróun-
ar í landinu.
FJARÐABYGGÐ
HEILBRIGÐISMÁL „Sparnaðarkraf-
an á spítalann er ótrúlega há. Við
höfum ekkert val, við verðum að
ná okkar markmiðum, ná að fylgja
fjárlögum og einbeita okkur að
öryggi sjúklinga,“ segir Björn
Zoëga, forstjóri Landspítalans.
Forsvarsmenn spítalans hafa
dregið upp hagræðingaráætlun í
sextíu liðum fyrir árið 2010. Þær
aðgerðir sem ákveðnar hafa verið
spara spítalanum 3,3 milljarða
tæpa sem er sú krafa sem gerð er
til spítalans. Tveir milljarðar eru
hagræðingarkrafa fjárlaga eða sex
prósent miðað við rekstur spítal-
ans árið 2009 auk 1,2 milljarða
uppsafnaðs halla á rekstri sama
árs.
Aðgerðirnar eru bæði almenn-
ar fyrir LSH í heild og sértækar
fyrir einstök svið eða starfsemi.
Hvað almennu aðgerðirnar varðar
á að ná mestum sparnaði með því
að draga úr vakt- og launakostn-
aði lækna og yfirvinnu starfsfólks,
auk þess sem sumarafleysingar
verða með öðru sniði. Þessir liðir
spara tæplega milljarð.
„Ég met það svo að helmingur
þessarar 3,3 milljarða hagræð-
ingar liggi í launum þegar allt er
talið,“ segir Björn. Hann segir það
hafa legið fyrir um tíma að fækka
verði starfsfólki. Hins vegar er
hann bjartsýnn á að ekki komi
til beinna uppsagna nema að litlu
leyti. „Ég tel að þessar breytingar
náist meira og minna með starfs-
mannaveltu, sem er alltaf töluverð
á svo stórum vinnustað.“
Fjölmargir starfsmenn LSH
hafa komið að því að finna leiðir til
sparnaðar, eða 33 faghópar þegar
allt er talið. Spurður hvernig þessi
vinna hafi gengið segir hann þetta
„líkt því að reyna að kreista blóð
úr steini“.
Hann gagnrýnir niðurskurð
innan heilbrigðiskerfisins afar
hart og segir það með ólíkindum
að ekki sé tekið tillit til þess að
gengistap í rekstri spítalans nemi
þremur milljörðum frá hruni. „Ég
verð að segja að það er einfald-
lega ósanngjarnt að ekki sé tekið
tillit til þessarar staðreyndar,
eins og hefur verið gert hjá öðrum
heilbrigðisstofnunum að nokkru
leyti.“
Þegar Björn er spurður hvort
ekki sé ljós í myrkrinu þá vísar
hann í auglýsingu sem birtist í gær
um forval fyrir hönnun á nýjum
Landspítala. „Nú verður ekki aftur
snúið. Ef allt gengur upp verður
farið í jarðvegsvinnu vorið 2011.
Þetta eru stórkostlegar fréttir.“
svavar@frettabladid.is
Niðurskurðarkrafan
hreint ótrúlega há
Stjórnendur Landspítalans hafa birt nákvæma áætlun til að hagræða um 3,3
milljarða á næsta ári. Leiðarljós aðgerðanna er að viðhalda öryggi sjúklinga.
Eins og að reyna að kreista blóð úr steini, segir Björn Zoëga, forstjóri LSH.
BANDARÍKIN HP tölvuframleið-
andinn kannar nú hvort galli í
hugbúnaði vefmyndavélar á far-
tölvum valdi því að myndavélin
nemi ekki andlit hörundsdökkra
einstaklinga en eigi ekki í vand-
ræðum með þá sem ljósir eru
á hörund, að því er segir á vef
CNN.
Hugbúnaðurinn á að nema
andlit þess sem horfir í mynda-
vélina og fylgja því eftir. Starfs-
menn tölvuverslunar í Banda-
ríkjunum sýndu með myndbandi
sem þeir settu á YouTube að
myndavélin fylgdi ekki eftir and-
liti hörundsdökks starfsmanns,
þó að hún ætti ekki í vandræðum
með hvíta samstarfskonu hans.
- bj
Myndavél greinir ekki svarta:
Kanna galla
á nýrri tækni
Kaupir þú lifandi jólatré?
Já 30%
Nei 70%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Er möndlugjöf hluti af jólahefð-
um á þínu heimili?
Segðu skoðun þína á visir.is
Almennar aðgerðir eru:
■ Dregið úr breytilegri og fastri
yfirvinnu – 575,5 m.kr.
■ Dregið úr aksturskostnaði og
símakostnaði – 58,8 m.kr.
■ Sumarafleysingar dregnar saman
– 131,0 m.kr.
■ Dregið úr vakt- og launakostnaði
lækna –206,0 m.kr.
■ Dregið úr viðhaldi, almennum
innkaupum og eignakaupum
– 206,0 m.kr.
■ Endurskoðun innkaupa á lækn-
inga- og hjúkrunarvörum –180,0
m.kr.
Sértækar aðgerðir eru:
Lyflækningasvið
■ Fækkun sjúkrarúma og aukin
dagdeildarþjónusta – 70,0 m.kr.
■ Legudeildum lokað, breytt í dag-
deildir A-5 – 13-D –135,0 m.kr.
■ Samdráttur í rekstri skurðstofa
110,0 m.kr.
Skurðlækningadeild
■ Legudeildum lokað, breytt í dag-
deildir A-5 – 13-D –135,0 m.kr.
■ Endurskipulag á rekstri Blóð-
banka – 40,0 m.kr.
■ Samdráttur í rekstri skurðstofa
■ rekstur –110,0 m.kr.
Geðsvið
■ Loka deild 14 á Kleppi 92,0 m.kr.
■ Breytt vinnufyrirkomulag / mönn-
unarmódel – 72,5 m.kr.
Stoðþjónusta
■ Eignasvið, hagræðing í launum
og rekstri –100,0 m.kr.
■ Fjármálasvið, hagræðing í launum
og rekstri – 59,0 m.kr.
DÆMI ÚR AÐGERÐALISTA LANDSPÍTALANS
FRÁ LANDSPÍTALA Bráðamóttaka verður sameinuð og mun sú aðgerð skila minnst
60 milljónum. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
KJÖRKASSINN
GARÐABÆR Formlegar viðræður
milli bæjarstjórna Álftaness og
Garðabæjar um sameiningu sveitar-
félaganna eru ekki hafnar en bæjar-
stjóri Álftaness hefur þó haft sam-
band við bæjarstjóra Garðabæjar.
„Áhugi þeirra á að hefja viðræð-
ur hefur komið fram og ég býst við
að við heyrumst betur milli jóla og
nýárs,“ segir Gunnar Einarsson,
bæjarstjóri Garðabæjar.
Bæjarstjórn Álftaness nálgist
málið með 90. grein sveitarstjórn-
arlaga í huga, en það ferli getur
verið nokkuð tímafrekt að mati
Gunnars.
Í greininni segir meðal annars
að bæjarstjórnir skuli kjósa fólk í
samstarfsnefnd, sem hafi samráð
við ráðuneyti sveitarstjórnarmála,
og skila síðan áliti um sameiningu.
Þá skal ræða málið tvívegis í báðum
bæjarstjórnum og loks skulu íbúar
kjósa um sameininguna, að lokinni
hæfilegum kynningarfresti.
Spurður um afstöðu sína til sam-
einingar, segir Gunnar hana koma
til með að byggjast á því hvernig
verði tekið á fjárhagsvanda Álfta-
ness og hvernig ríkisvaldið komi að
þeim vanda. Þá eigi íbúarnir að eiga
síðasta orðið.
Álftanes á að skila skýrslu til
sveitarstjórnarráðuneytis um fjár-
hagslegar björgunaraðgerðir sínar
og um sameininguna fyrir 20. jan-
úar.
Ekki náðist í bæjarstjóra Álfta-
ness. - kóþ
Bæjarstjóri Garðabæjar vill sjá hvernig vandi Álftaness verður leystur:
Á von á viðræðum eftir jól
NOREGUR Piparkökubærinn í Bergen, sem er
sá stærsti í heimi, var eyðilagður af ölvuð-
um manni sem ekki gat gefið neina skýringu
á framferði sínu. Í bænum voru 1.960 mann-
virki sem þöktu þúsundir fermetra, hann
var byggður af tólf þúsund íbúum borg-
arinnar; fjölskyldum, leikskólabörnum og
starfsmönnum fyrirtækja.
Þegar ljóst var að öll þessi vinna var að
engu orðin vegna drykkjuláta, upphófst ein
mesta leit í sögu Bergen. Gerð var skýlaus
krafa um að skemmdarvargurinn fyndist og
fyrirtæki settu fé til höfuðs hans.
Maðurinn fannst, reyndist vera 22 ára
ónefndur karlmaður, sem sagðist ekkert
muna. Andinn í borginni breyttist þó fljótt
úr hefndarþorsta yfir í hinn sanna jólaanda.
Opnun piparkökubæjarins var einfald-
lega frestað um þrjár vikur og ákveðið að
byggja hann upp aftur frá grunni. Aldrei
hafa fleiri lagt fram krafta sína og með sam-
stilltu átaki voru byggðir kastalar, kirkjur,
hús, brýr og bátar. Einnig nokkrar bílaferj-
ur, farþegaskip og olíuborpallar. Já, og svo
auðvitað miðbær Bergen og allar hans fræg-
ustu byggingar.
Bærinn sem nú hefur risið er sá stærsti í
áratuga sögu þessarar norsku jólahefðar. Á
laugardag höfðu 60 þúsund manns heimsótt
piparkökubæinn og dregið að sér höfugan
ilminn af sírópi, engifer og kanil. Ef held-
ur fram sem horfir verða slegin aðsóknar-
met og syndir drukkins manns eru löngu
gleymdar. - shá
Ölvaður maður eyðilagði piparkökubæinn í Bergen sem er sá stærsti í heimi:
Borgin byggði piparkökubæinn að nýju
PIPARKÖKUVERÖLD „Mannvirkin“ skipta þúsundum og
fermetrarnir líka. MYND/BJÖRGÓLFUR HÁVARÐSSON