Fréttablaðið - 24.12.2009, Blaðsíða 31
FIMMTUDAGUR 24. DESEMBER 2009 5kirkjan ● fréttablaðið ●
Á hæðunum í kringum Betlehem voru fjárhirðar úti í
haga um nótt og gættu hjarðar sinnar. Allt í einu helltist
yfir þá ofurbjart ljós eins og það væri kominn dagur.
Engill birtist þeim í skæru ljósinu. „Verið ekki hræddir,“
sagði engillinn. „Ég flyt ykkur góðar fréttir. Í nótt fæddist
frelsari heimsins í Betlehem. Þið munuð finna ungbarn
liggjandi í jötu.“
Engillinn og hirðarnir
1
2
3
4
5
67
8
91011
12
13
14
1516
17
18 1920
21
22
23
24
2526
27
2829
30
31
32
k j a t a s
ó h r æ d d
n b a r n k
g ó ð ú ó u
u j æ v l p
r f r é t t
Síðan
birtust á
himninum enn
fleiri englar og sungu
Guði lof og dýrð. Þetta var
stórkostleg sýn!
Fjárhirðarnir spruttu á fætur og flýttu sér eins og
þeir gátu beint til Betlehem. „Við verðum að sjá þetta
einstaka barn,“ sögðu þeir.
Í Betlehem hittu þeir Maríu og Jósef og sáu barnið í
jötunni. „Þetta er alveg eins og englarnir sögðu,“ hvísl-
uðu þeir sín á milli lágum rómi. Fjárhirðarnar fóru síðan
aftur til að líta eftir kindunum sínum. Þeir voru glaðir í
bragði og sungu Guði lof hátt og snjallt fyrir þetta stór-
kostlega undur sem þeir höfðu fengið að sjá.
Birt með leyfi Skálholtsútgáfunnar. Nánar á barnatru.is
Leitað að orðum
Dragðu hring um orðin sem englarnir sögðu
við fjárhirðana.
Óhrædd
Góð
Frétt
Barn
Kóngur
Jata
Dragðu strik milli punktanna, frá 1-32, til
að sjá hvað fjárhirðirinn er með í fanginu.
Litaðu svo myndina.
Hve mörg lömb getur þú talið á síðunni?
Hjálpaðu vitringnum að
finna rétta leið að fjár-
húsinu þar sem Jesús
fæddist. Það má ekki
fara yfir rauðu línurnar.
Langt í burtu frá Betlehem voru nokkrir vitringar sem
horfðu rannsakandi augum á stjörnur himinsins. Þeir
höfðu skyndilega séð stjörnu nokkra sem skein svo
skært og fagurlega.
„Stjarnan þýðir að nýr konungur hefður fæðst,“ sögðu
þeir hver við annan. „Við verðum að fara og sjá hann
og heiðra með gjöfum.“
Vitringarnir gerðu sig ferðbúna og
héldu af stað. Stjarnan vísaði
þeim leið. Eftir langt ferðalag komu vitringarnir loks til
Betlehem.
„Sjáið! Stjarnan skín yfir húsinu þarna,“ sögðu þeir
og voru spenntir. Þeir gengu hljóðlega inn í húsið og
þar fundu þeir Maríu, Jósef og Jesúbarnið. Vitringarnir
hneigðu sig fyrir barninu og lofuðu það. „Við höfum
fundið nýfædda konunginn!“ sögðu þeir fagnandi. Síðan
gáfu þeir Jesúbarninu dýrmætar gjafir, gull, reykelsi og
myrru. María horfði á gjafirnar og var bæði undrandi og
glöð.
Birt með leyfi Skálholts-
útgáfunnar. Nánar á
barnatru.isVitringar á ferðalagi
Vitringarnir földu gjafirnar innan á
sér. Dragðu hring í kringum gjafirnar
þegar þú hefur fundið þær.
Týndar gjafir
Ratleikur
Trú.is
er trúmálavefur fijó›kirkjunnar.
fiar finnur flú pistla um trúmál,
prédikanir, spurningar og svör,
almanak kirkjunnar
og margt fleira.
Líttu vi›!
A
R
G
H
1
20
9
„Við megum sjá Guð í ástarsögum heimsins.
Veröldin er frá upphafi alin í ástareldi.
Allt efni, öll tilveran kraumar
af ást, Guðsástinni
meðal mannanna.“
Sigurður Árni Þórðarson:
Þrjár ástarsögur og appelsínur
„Bjóddu fólki heim, en ekki til
að heilla það upp úr skónum
með flottum mat og fínheitum
heldur til þess að eiga gott
samfélag. Einföld máltíð í
góðra vina hópi gefur mikið.“
Petrína Mjöll Jóhannesdóttir:
Tíu leiðir til þess að gera
jólin innihaldsríkari
„Þú hefur valið að vera hér, staðnæmast hjá barninu þessa stund. Englar
himinsins horfa í augu þín í kvöld og góður Guð sér og þekkir alla þína vegu.“
Jóna Hrönn Bolladóttir og Bjarni Karlsson:
Kyrrðin eins og á fjöllunum
„Missir og sorg verða oft enn sárari á aðventu
og jólum, þessum tíma sem oft nýtist til
þess að styrkja fjölskylduböndin og rifja upp
hefðirnar.“
Sigrún Óskarsdóttir:
Jólagleði og jólasorg
JÓL Á
TRÚ.IS
„Umfram allt eru jólin tími umhyggju um eigin dýpstu þarfir,
um náungann og þau sem með einum eða öðrum hætti fara
halloka í lífinu.“ Karl Sigurbjörnsson:
Ljós og andi jólanna